Vill vefslóðir með rússnesku letri

Dmitry Medvedev. Á bak við hann stendur „Sameinuð sigrum við“ …
Dmitry Medvedev. Á bak við hann stendur „Sameinuð sigrum við“ á rússnesku. Reuters

Dmitry Medvedev Rússlandsforseti segir að gera þurfi allt sem hægt er til að fá lén skráð með kýrilísku letri á netinu. Það væri mikilvægt fyrir rússneska tungu og rússnesku þjóðina.

Medvedev er duglegur að nota netið, og hefur látið hafa eftir sér að hann slökkvi aldrei á tölvunni sinni.

Kýrilískt letur er notað í Rússlandi, Búlgaríu og Serbíu. Lengi hefur verið rætt um möguleika á að koma upp alþjóðlegum lénastaðli (Internationalised Domain Names), en ekki hefur hann enn litið dagsins ljós.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert