iPad 2-spjaldtölvan afhjúpuð í dag

Mikil eftirspurn hefur verið eftir iPad 2 tölvum. Langur biðlisti …
Mikil eftirspurn hefur verið eftir iPad 2 tölvum. Langur biðlisti hefur myndast hér á landi. Reuters

Önnur kynslóð iPad-spjaldtölvunnar frá Apple kemur fyrir sjónir Íslendinga í dag, en klukkan 17:01 gefst áhugasömum færi á að kynna sér hana í verslun Epli.is við Laugaveg.

Langir biðlistar mynduðust um allan heim eftir að Steve Jobs, forstjóri Apple, kynnti iPad 2 fyrir nokkrum vikum. Íslendingar eru þar engir eftirbátar, og ljóst að eftirvæntingin er nokkuð mikil.

Hin nýja tölva er töluvert fullkomnari en hinn upprunalegi iPad, sem kom á markað á fyrri hluta síðasta árs. Á meðal breytinga má nefna tilkomu myndavéla að framan og aftan auk þess sem tölvan er búin tveggja kjarna A5-örgjörva, sem eykur vinnsluhraða til muna. Þrátt fyrir aukin afköst og notkunarmöguleika er tölvan um þriðjungi þynnri en fyrsta útgáfan var og nokkru léttari. Skjástærð er hins vegar sú sama. Uppgefin rafhlöðuending iPad 2 í notkun er um tíu klukkustundir, sem er sambærilegt við það sem fyrir var.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert