Marktækt samband milli bólusetningar og drómasýki

Bóluefnið Pandemrix er framleitt af GlaxoSmithKlein.
Bóluefnið Pandemrix er framleitt af GlaxoSmithKlein. mbl.is

Ný bresk rannsókn sýnir fram á að marktækt samband er á milli bólusetningar gegn svínainflúensu með bóluefninu Pandemrix og drómasýki hjá börnum og unglingum.

Þetta kemur fram í grein sem birtist í vísindatímaritinu BMJ (British Medical Journalann þann 26. febrúar sl., samkvæmt frétt á vef landlæknisembættisins. Þar kemur fram að áður hafa birst niðurstöður um marktækt samband bólusetningarinnar og drómasýki í þessum aldurshópum í Finnlandi og Svíþjóð en ekki í öðrum löndum. 

Á Íslandi hefur ekki sést marktækt samband á milli bólusetningar með Pandemrix og drómasýki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert