Ný og hættulegri tegund af HIV

HIV skyndismitpróf
HIV skyndismitpróf Mynd/AFP

Vísindamenn við Háskólann í Lundi í Svíþjóð hafa nú fundið nýja tegund af HIV-veirunni sem þróast yfir í alnæmi mun hraðar en aðrar tegundir. Medical News Today greinir frá þessu í dag. Alls getur það tekið þessa tegund af veirunni um 5 ár að þróast yfir í alnæmi. 

Alls eru þekktar um 60 tegundir af veirunni í heiminum. Þessi nýja tegund sem fannst er talin blanda af tveimur áður þekktum tegundum af veirunni sem aðallega finnast í Gíneu-Bissá. Ef þessar tvær tegundir af veirunni setjast báðar að í sama líkamanum getur hin nýja tegund myndast og yrði það gríðarlega hættulegt fyrir sjúklinginn. 

Þótt þessi tegund hafi aðeins fundist á afmörkuðu svæði geta slíkar veirur dreifst um heiminn með ógnarhraða. Með auknum ferðamannastraumi og búferlaflutningum búast vísindamenn við að í framtíðinni muni stöðugt koma fram ný afbrigði af veirunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert