Spænskur stjörnufræðingur segist hafa séð þegar lítill loftsteinn skall af krafti á tunglinu. Náðist þetta á myndband en um er að ræða mesta árekstur við tunglið sem sést hefur.
Jose Maria Madiedo er prófessor við háskólann í Huelva. Hinn 11. september á síðasta ári var hann að stjórna tveimur stjörnukíkjum er hann sá bjartan blossa á tunglinu, nánar tiltekið á Mare Nubium-svæðinu. Blossinn var álíka bjartur og pólstjarnan.
Talið er að hann hefði getað sést með berum augum frá jörðu ef einhver hefði einmitt á því augnabliki litið til himins. Ljósblossinn sást í átta sekúndur.
„Á því augnabliki gerði ég mér grein fyrir að ég hafði orðið vitni að sjaldgæfum og óvenjulegum atburði,“ segir Madiedo.
Miðað við myndbandið má áætla að steinninn hafi verið um 400 kíló og um 60-140 sentímetrar í þvermál.
Hann var á um 61 þúsund kílómetra hraða á klukkustund er hann skall á tunglinu.