Gjalda með blóði fyrir brotin loforð

Þegar Íhaldsflokkurinn hét því fyrir kosningar að uppræta innlenda markaðinn …
Þegar Íhaldsflokkurinn hét því fyrir kosningar að uppræta innlenda markaðinn með fílabein, voru 30.000 fílar drepnir árlega vegna skögultanna sinna. AFP

Aðgerðaleysi breskra stjórnvalda hefur sett fílinn í hættu en fyrir síðustu kosningar hétu íhaldsmenn að uppræta innlendan markað með fílabein. Á þeim tíma voru 30.000 fílar drepnir á ári hverju vegna skögultanna sinna. Engar aðgerðir hafa litið dagsins ljós frá þeim tíma.

Þetta segja náttúruvendarsinnar en þrátt fyrir að alþjóðleg lög séu í gildi sem banna sölu fílabeins, gerir skortur á staðbundnum reglum og eftirfylgni glæpagengjum kleift að smygla vörunni inn til Bretlands, þar sem hún er seld sem fornmunir.

Fleiri en 1,6 milljónir manna hafa tekið þátt í undirskriftasöfnun þar sem skorað er á ríkisstjórnir að uppræta innlenda markaði fyrir fílabein.

„Afrískir fílar gjalda með blóði fyrir brotin loforð stjórnvalda um að banna sölu á fílabeini í Bretlandi,“ segir Bert Wander, framkvæmdastjóri baráttusamtakanna Avaaz. Hann segir tímabært að bresk stjórnvöld létu gjörðir fylgja orðum.

„Annars sjá Kína og aðrir heitir reitir fyrir fílabeinssölu enga ástæðu til að taka í gildi hið varanlega bann gegn fílabeini sem til þarf til að koma í veg fyrir að fílar þurrkist út af jörðinni,“ segir Wander.

Á árunum 2009-2014 námu hlutir úr fílabeini 40% af öllum þeim varningi sem bresk tollayfirvöld lögðu hald á. Á síðasta ári var lagt hald á 110 kg af fílabeini bara á Heathrow-flugvelli.

Ítarlega frétt um málið er að finna hjá Guardian.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert