Twitter breytir verklaginu hjá sér

Twitter-aðgangi Bandaríkjaforseta var lokað af óprúttnum starfsmanni sem var að …
Twitter-aðgangi Bandaríkjaforseta var lokað af óprúttnum starfsmanni sem var að vinna síðasta vinnudaginn sinn hjá Twitter. AFP

Twitter hefur breytt verklagi sínu og komið fyrir varnöglum eftir að starfsmaður Twitter lokaði aðgangi Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í dag á síðasta vinnudegi sínum hjá fyrirtækinu.

Twittersíða Trumps lá niðri í 11 mínútur en Twitter opnaði aftur fyrir hana þegar upp komst um atvikið. „Við höfum komið fyrir varnöglum til að koma í veg fyrir að svona atviki endurtaki sig,“ segir í tilkynningu sem Twitter sendi frá sér í kjölfarið en þar kemur einnig fram að fyrirtækið líti þetta alvarlegum augum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert