Regnbogi á himni í níu klukkutíma

Ein þeirra fjölmörgu mynda sem náðust af regnboganum.
Ein þeirra fjölmörgu mynda sem náðust af regnboganum.

Yfirleitt hverfa regnbogar frekar fljótt af himni eftir að þeir myndast en í síðustu viku urðu háskólakennarar og nemendur þeirra í Taívan vitni að því er regnbogi var á himninum í heilar níu klukkustundir. Talið er að um met hafi verið að ræða. 

„Þetta var ótrúlegt, þetta var eins og gjöf frá himnum, þetta er svo sjaldgæft!“ segir Chou Kun-hsuan, kennari við Kínverska menningarháskólann í Taipei, í samtali við BBC. 

Tveir kennarar við skólann fóru ásamt nemendum sínum að rannsaka regnbogann. Á myndböndum og myndum mátti sjá að hann var samfleytt á himni í átta klukkutíma og 58 mínútur. 

Ef þetta fæst staðfest var þarna á ferðinni langlífasti regnbogi sem mælst hefur en metið tilheyrir núna boga sem sást í Yorkshire á Englandi í mars árið 1994. Sá sást í sex klukkustundir að því er fram kemur í heimsmetabók Guinness. 

Regnbogar eru yfirleitt skammlífir og sjást aðeins í um klukkustund í senn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert