Nýir möguleikar að prenta líffæri

Þrívíddarprentarinn.
Þrívíddarprentarinn. mbl.is/Eggert

Nýir möguleikar opnast á notkun þrívíddarprentaðra líffæra við undirbúning skurðaðgerða og við fjölbreyttar rannsóknir og prófanir, með tilkomu nýs og fullkomins þrívíddarprentara sem tekinn var í notkun á heilbrigðistæknisetri Háskólans í Reykjavík og Landspítala – háskólasjúkrahúss í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Með því að þrívíddarprenta líffæri sjúklinga sem þurfa á aðgerð að halda geta læknar undirbúið sig betur fyrir aðgerðir og stytt þann tíma sem aðgerðir taka. Það eykur öryggi sjúklinga. Að meðaltali hafa verið framkvæmdar 15 aðgerðir með aðstoð þrívíddarprentunar á hverju ári undanfarin ár.

Nýi þrívíddarprentarinn getur unnið úr teikningum með gríðarlegri nákvæmni, og skekkja í prentun er innan við 0,1 millimetri. Hann getur prentað mjög flókna hluti úr fjölbreyttum efnum, t.d. bæði gegnsæju efni og lituðu, sveigjanlegu eða hörðu. 

Að kaupum á prentaranum standa Háskólinn í Reykjavík, Landspítali – háskólasjúkrahús, Össur og Háskóli Íslands.

Mynd af hjarta sem verður brátt prentað út.
Mynd af hjarta sem verður brátt prentað út. mbl.is/Eggert
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert