Hugbúnaðarlausn Origo í úrslit hjá IBM

CCQ hugbúnaðarlausnin frá Origo komst í lokaúrslit Beacon nýsköpunarkeppni IBM.
CCQ hugbúnaðarlausnin frá Origo komst í lokaúrslit Beacon nýsköpunarkeppni IBM. Ljósmynd/Aðsend

CCQ hugbúnaðarlausnin frá Origo komst í lokaúrslit Beacon nýsköpunarkeppni IBM að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu, en hátt í 500 lausnir alls staðar að úr heiminum tóku þátt í keppninni. 

Markmið keppninnar er að hvetja samstarfsaðila IBM til þróunar á lausnum sem skapa aukið virði og stuðla að jákvæðum breytingum hjá viðskiptavinum.

CCQ, sem stendur fyrir Cloud Compliance & Quality), er gæðastjórnunarlausn í skýinu og byggir á gæðahandbók, ábendingum, áhættustjórnun, úttektum, eignastýringu og hæfnisstjórnun.

„Árangur CCQ kom okkur skemmtilega á óvart og er einfaldlega mikil og góð viðurkenning fyrir Origo. Við höfum lagt mikla áherslu á þróun eigin hugbúnaðarlausna enda teljum við að þar liggi helstu vaxtasprotar félagsins til framtíðar. Við höfum skynjað afar góða eftirspurn eftir CCQ á íslenskum markaði ekki síst vegna þess að hún styður við GDPR, nýja persónuverndarreglugerð ESB, sem tekur gildi í lok maí. Jafnframt gerum við okkur vonir um að lausnin nái eyrum viðskiptavina víðar þegar fram líða stundir, enda einstök lausn og býr yfir mikilli sérstöðu“ er haft eftir Hákoni Sigurhanssyni, framkvæmdastjóra Hugbúnaðarlausna Origo í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert