Ævintýralegt ris Fortnite

Hefur þú heimsótt Tilted Towers? Eða ferðu oftar til Tomato Town eða í Pleasant Park? Þá ertu á meðal þeirra milljóna sem spila tölvuleikinn Fortnite. Ef ekki þá er hér allt sem þú vildir vita um Fortnite en þorðir ekki að spyrja um.

Tölvuleikurinn Fortnite frá Epic Games hefur notið sívaxandi vinsælda á síðustu mánuðum. Foreldrar stráka á aldrinum frá tíu ára og fram á unglingsaldur hafa áreiðanlega flestir heyrt um þennan leik en leikurinn er sérstaklega vinsæll hjá þessum aldurshópi. Fólk á öllum aldri og af báðum kynjum er líka á meðal þeirra milljóna sem spila leikinn. Nýjustu tölur, sem eru frá því í mars, segja að 45 milljónir manna spili leikinn.

Hluti af vinsældum Fortnite er að leikurinn er blanda af byggingaleik eins og Minecraft og skotleik eins og Call of Duty og stemningin minnir á Hunger Games. Sú útgáfa af Fortnite sem er mest spiluð er ókeypis og kallast Battle Royale en í henni spila margir á sama tíma; nánar tiltekið allt að hundrað manns í sama leik. Það er hægt að spila mismunandi útgáfur, allir á móti öllum, tveir í liði, allt að fjórir í liði eða 50 á móti 50. Keppt er þar til ein manneskja eða eitt lið stendur eftir.

Leikinn er hægt að spila á PlayStation 4, Xbox One, Windows, Mac og iOS-stýrikerfi fyrir farsíma og spjaldtölvur.

Teiknimyndalegri en margir leikir og ekkert blóð

Það eru margar ástæður fyrir því að leikurinn er svona vinsæll hjá krökkum. Ein er sú að hann minnir á aðra vinsæla leiki. Hann lítur ekki eins ógeðslega út og sumir; hann er teiknimyndalegri og það er til dæmis ekkert blóð í Fortnite. Það sem er ekki síst skemmtilegt við leikinn er félagslegi hluti hans. Vinir geta spilað saman og talað saman án þess að vera á sama stað. Í liðakeppni þarf líka að vinna saman og ekki dugar að hugsa um eigin hag til að liðinu gangi sem best.

Leikurinn hefst á því að þátttakendur hoppa út úr fljúgandi rútu á eyju og velur hver og einn sér lendingarstað. Þegar þangað er komið þarf að finna sér viðeigandi vopn. Leikmaðurinn ferðast um eyjuna og reynir að finna bestu byssurnar, skildi og annað sem ver gegn árásum. Það er mikilvægt að útvega sér byggingarefni en leikmenn geta höggvið niður næstum hvað sem er í umhverfinu til að útvega sér við, stein og málma til að geta byggt brýr og hýsi til að verjast árásum og hindra framgang annarra leikmanna. Þátttakendur þurfa ennfremur að vara sig á storminum sem stækkar og færist en þeir leikmenn sem lenda í storminum eiga á hættu að láta lífið.

Fleiri konur spila Fortnite en aðra sambærilega leiki

Í nýrri frétt á Bloomberg kemur fram að nærri helmingur þeirra sem spila leikinn sé kvenkyns, samkvæmt mati rannsóknarfyrirtækisins Apptopia Inc. Hlutfallið hjá leikjum eins og Call of Duty eða Grand Theft Auto er að einn spilari eða færri af þremur sé kona.
Í auglýsingum og öllu efni frá Fortnite eru konur áberandi. Bæði strákar og stelpur geta spilað sem kvenkyns fígúra. Ólíkt öðrum leikjum þá geta Fornite-leikmenn ekki ákveðið hvernig þeir líta út í leiknum þegar þeir byrja sem þýðir að karlkyns spilari lítur kannski út eins og kona og öfugt. Ef þátttakendur vilja ráða útlitinu verða þeir að borga og jafnvel þá eru ekki allar persónur til í bæði kvenkyns og karlkyns útgáfum.

Vinsælasti tölvuleikurinn á YouTube

Leikurinn varð í mars vinsælasti tölvuleikur allra tíma á YouTube því það er ekki aðeins vinsælt að spila heldur líka að horfa á aðra spila. Á YouTube er Ali-A einn sá vinsælasti en algengt er að myndbönd hans nái yfir tveimur milljónum áhorfa á um sólarhring. Ninja er annar vinsæll Fornite-spilari en hann spilar mikið í beinni á Twitch. Fyrr á árinu spilaði hann leikinn í beinni ásamt tónlistarmanninum Drake en yfir 630.000 manns fylgdust með, sem er met.


Á vefnum commonsensemedia.org er leikurinn metinn að vera við hæfi 13 ára og eldri en sá aldur sem foreldrar meta í lagi er 11 ár en krökkum finnst í lagi að 10 ára spili leikinn. Það er samt gott að fylgjast með yngri börnum spila leikinn og forðast að þau hafi kveikt á hljóðnemanum þegar þau spila við einhvern sem þau þekkja ekki.

Framleiðandinn Epic Games hefur ákveðið að setja 100 milljónir dala í verðlaunasjóð fyrir Fortnite-keppnir, sem hefjast síðar á þessu ári. Seinna á þessu ári verður líka hægt að spila leikinn í Kína þannig að það er alveg ljóst að vinsældir Fortnite eiga aðeins eftir að vaxa.

Tekjur í apríl tæpar 300 milljónir dala

Leikurinn þénaði 269 milljónir dala (29,94 milljarðar króna) í apríl og þá eru teknar saman tekjur af notkun leikja- og heimilistölva auk farsíma og spjaldtölva samkvæmt SuperData Research. Þetta er tvöfalt meira en tekjur af leiknum voru í febrúar þegar þær voru 126 milljónir dala (3,5 milljarðar króna) og náði þá Fortnite hinum vinsæla leik Playerunknown’s Battlegrounds í mánaðarsölu í fyrsta sinn.


Munurinn á leikjunum og það sem gerir Fortnite svona áhugaverðan hvað þetta verðar er að hann er ókeypis en tekjurnar koma í gegnum ýmislegt sem hægt er að kaupa í leiknum. Epic selur notendum ýmsa hluti sem hafa ekki áhrif á gang leiksins heldur eru aðeins útlitslegir eins og margar gerðir af mismunandi búningum og líka geta notendur látið persónur sínar dansa ýmiskonar dansa. Ennfremur er seld ákveðin áskrift sem heitir Battle Pass sem kostar um tíu dali (rúmar þúsund krónur). Þessir hlutir seljast svo vel að Fortnite þénaði meiri peninga en miðasalan á Avengers: Infinity War í sama mánuði, sem er einhver vinsælasta kvikmynd síðari tíma, að því er fram kemur á vef The Verge.

Það eru nokkrar ástæður fyrir því að tekjurnar af Fortnite aukast stöðugt. Leikurinn kom út fyrir iOS-stýrikerfið á síma um miðjan mars í beta-útgáfu og síðan fyrir alla Apple-notendur fyrstu vikuna í apríl. Það er líklegt að það hafi haft mikil áhrif á tekjumöguleika en fyrirtækið Sensor Tower, sem sérhæfir sig í farsímatengdum markaðsmálum, greinir frá því að leikurinn þéni milljón bandaríkjadali (107,6 milljónir króna) á dag á útgáfunni fyrir farsíma/spjaldtölvu.

Leikurinn á eftir að ná til enn fleiri en Epic áætlar að senda frá sér útgáfu fyrir Android í sumar.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert