Í vandræðum með Facebook og Instagram

Notendur Facebook eiga í vandræðum með vefinn.
Notendur Facebook eiga í vandræðum með vefinn. AFP

Vefsíður og smáforrit Facebook og Instagram virðast ekki virka sem skyldi hjá fjölda notenda samfélagsmiðlanna. Fjöldi fólks hefur tilkynnt um vanvirkni miðlanna á vefsíðu Outage Report  frá hádegi að íslenskum tíma.

Independent greinir frá því að fjöldi notenda hafi látið vita að vefsíða Facebook virki alls ekki og að Instagram uppfærist ekki, þrátt fyrir að miðillinn opnaðist.

Ekki er víst hvort vanvirkni miðlanna tveggja tengist, en Instagram er í eigu Facebook. Flestar tilkynninganna hafa borist frá Bandaríkjunum, Bretlandi og Evrópu samkvæmt korti Outage Report.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert