Þróuðu sjálfvirka mælingu á koffínneyslu

Um 20 verkefni litu dagsins ljós á Ofurhetjudögum Origo.
Um 20 verkefni litu dagsins ljós á Ofurhetjudögum Origo. mbl.is/Kristinn Magnússon

Bestun á seðlamagni í hraðbönkum með gervigreind, sjálfvirk sjúkdómsgreining á netinu, viðverukerfi með andlitsgreiningu og sjálfvirk mæling á koffínneyslu voru verkefnin sem urðu hlutskörpust á Ofurhetjudögum Origo sem haldnir voru í liðinni viku, en um er að ræða keppni á milli starfsfólks sem hefur það að markmiði að efla nýsköpun og þróa nýjar tæknilausnir.

Um 20 verkefni litu dagsins ljós að þessu sinni, en verðlaunað var fyrir frumlegasta verkefnið, bestu viðbótina, bestu kynninguna og bestu hugmyndina.

„Við höfum haldið Ofurhetjudaga í mörg ár og eru þeir eitt af mörgu sem við gerum til að auka nýsköpun, vöruþróun og prófa nýja tækni. Starfsmenn velja sér verkefni og vinna í hópum að því sem þá langar helst að gera og kynna síðan fyrir öðrum starfsmönnum. Við höfum fengið margar frábærar hugmyndir og lausnir í gegnum árin með þessum hætti sem hafa orðið að nýjum vörum og komið viðskiptavinum okkar til góða með ýmsum hætti. Þetta er mjög skemmtilegir dagar sem gefa starfsfólki frelsi til sköpunar sem gefst síður í dagsins önn,“ segir Hákon Sigurhansson, framkvæmdastjóri Hugbúnaðarlausna hjá Origo.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert