Vísindamenn hafa komist að þeirri niðurstöðu og um leið þverstæðu að karlar eyðileggja fyrir sér möguleikann á að eignast börn með tilraunum sínum til að verða meira aðlaðandi.
Má þar nefna að steranotkun til að auka líkamsburði sína eða inntaka skallameðala til að halda höfðinu hærðu getur dregið úr frjósemi þeirra. Þessi þverstæða hefur verið nefnd Mossman-Pacey-kenningin eftir vísindamönnunum sem fyrstir lýstu henni. Þeir segja að þetta séu sorglegar fréttir fyrir pör sem eru að reyna að eignast afkvæmi.
Dr. James Mossman, sem er prófessor við Brown-háskólann, segir að þegar hann var í doktorsnámi í Sheffield hafi ítrekað komið þangað karlar til að láta kanna frjósemi sína og að þessir menn hafi margir verið miklir að burðum.
Í viðtali við BBC segir að þarna hafi hann áttað sig á tengingunni við sterana en þessir menn hafi reynt að rembast eins og rjúpan við staurinn í að verða stæltari en með þessu lyfjaáti hafi þeir í raun og veru minnkað getu sína til þess að fjölga mannkyninu.
„Karlmenn á sterum geta lent í því að eistu þeirra minnki. Þetta kann að hljóma öfugsnúið (það að eistu minnki) en hefur líffræðilega skýringu. Í undirstúku heilans eru efnanemar sem fylgjast með magni hormóna í blóði. Eitt þeirra er testósterón. Efnanemarnir greina þó ekki á milli testósteróns sem eistu mynda og testósteróns sem er tekið sem lyf. Þegar testósterón í lyfjaformi bætist við það testósterón sem þegar er myndað í líkamanum „halda“ efnanemarnir að eistun hafi verið ofvirk og setja af stað ferli sem endar með að þau fá minni örvun en eðlileg er og fara að slá slöku við. Líkaminn dregur sem sagt úr sinni eigin framleiðslu þegar hann fær mikið i lyfjaformi og það kemur fram í minnkun eistna.
Algengar aukaverkanir steranotkunar eru miklar bólur í andliti, ofurhárvöxtur eða hárlos og lítil stjórn á tilfinningum (til dæmis árásarhneigð, ofbeldishneigð og pirringur). Karlmenn geta lent í því að þeir fái brjóst á meðan konur eiga á hættu að fá karlkynseinkenni og tíðatruflanir. Alvarlegri aukaverkanir eru tengdar langtímanotkun stórra skammta. Þar má nefna lifrarskemmdir og lifrarkrabbamein. Einnig má geta aukinnar hættu á hjarta- og æðasjúkdómum, þar á meðal heilablóðfalli. Ef sterunum er sprautað í líkamann með óhreinum nálum eykst hætta á eyðnismiti, lifrarbólgu B og C og hjartaþelsbólgu af völdum baktería,“ segir um steranotkun á Vísindavef Háskóla Íslands.
Allan Pacey, prófessor við University of Sheffield, segir í samtali við BBC að þetta sé fremur kaldhæðnislegt - karlar fara í ræktina til að líta betur út en enda með að draga úr frjósemi sinni.
Svipaða sögu er að segja um töflur sem eiga að lækna skalla. Lyfið getur komið tímabundið í veg fyrir hárlos en aukaverkanirnar eru þær að það getur á sama tíma dregið úr frjósemi þeirra. Læknarnir telja að þeir sem noti stera séu flestir á góðri leið með að verða ófrjóir. Jafnvel 90% þeirra.