„Áhrifaríkasta sjónarspil náttúrunnar“

Það er aðeins tvennt annað en sólmyrkvi sem Sævar Helgi …
Það er aðeins tvennt annað en sólmyrkvi sem Sævar Helgi Bragason heldur að sé fallegra að sjá í sólkerfinu með eigin augum: Hringir Satúrnusar í návígi og plánetan Jörð frá tunglinu. mbl.is/Golli

„Þetta var hreint út sagt stórkostlegt,“ segir Sævar Helgi Bragason, landsþekkt­ur vís­inda­fræðari, sem varð í nótt, eftir því sem best er vitað, fyrsti Íslendingurinn til að upplifa þriðja almyrkva á sólu á lífsleiðinni. 

Sævar Helgi er staddur í Atacama-eyðimörkinni í Síle þar sem almyrkvi á sólu sást greinilega í nótt. „Að standa á tindi 2.300 metra hás fjalls og horfa á þetta einstaka sjónarspil er eitthvað sem ég gleymi aldrei,“ segir Sævar Helgi, en aðstæður til að upplifa sólmyrkvann voru með besta móti, heiðskírt og lítil sem engin ljósmengun. „Þetta er í alvöru fallegasta og áhrifaríkasta sjónarspil náttúrunnar.“

Sól­myrkvi, eða al­myrkvi á sólu, verður þegar tunglið geng­ur milli sól­ar og jarðar svo tunglið myrkv­ar sól­ina að hluta til eða í heild frá jörðu séð. Al­myrkvi verður aðeins þegar sól­in, tunglið og jörðin eru í beinni línu. Al­myrkvinn í nótt varði aðeins í tæpar tvær mínútur en nú um stundir getur almyrkvi ekki staðið yfir í meira en sjö mínútur og 32 sekúndur, en lengdin ræðst af nokkrum þáttum, svo sem fjarlægð tunglsins frá Jörðinni, fjarlægð Jarðar frá sólu og hvar á Jörðinni myrkvinn er, að því er fram kemur á Stjörnufræðivefnum

Almyrkvi á sólu, sem sást m.a. vel í Chile, í …
Almyrkvi á sólu, sem sást m.a. vel í Chile, í nótt varði í tæpar tvær mínútur. AFP

Almyrkvinn í nótt var sá stysti sem Sævar Helgi hefur upplifað, en á sama tíma er þetta þriðji almyrkvinn sem hann sér með berum augum á fjórum árum. Árið 2016 ferðaðist hann til Indónesíu og sumarið 2017 var Sævar Helgi í bæn­um Ca­sper í Wyom­ing-ríki þar sem al­myrkv­i á sólu sást vel. 

Sævar Helgi stóðst ekki mátið og tók sólmyrkvann upp á myndskeið, en hann segist hafa „múltitaskað sem aldrei fyrr“ þar sem hann hélt á símanum, horfði með berum augum og skaut sjálfvirkt í gegnum myndavélina. Dýrðina er því hægt að sjá hér að neðan. 

„Felldi tár enn og aftur“

„Hver myrkvi er einstakur því útsýnið er aldrei eins og kóróna sólarinnar alltaf mismunandi. Ég fékk kökk í hálsinn og felldi tár enn og aftur. Þetta er bara svona stórkostlegt,“ segir Stjörnu-Sævar, en frá almyrkvanum sem sást vel hér á landi í mars 2015 hefur Sævar varla verið kallaður neitt annað, enda líklega manna fróðastur um stjörnufræði hér á landi.  

Í samanburði við aðra atburði í sólkerfinu segir Sævar Helgi að almyrkvi á sólu sé býsna merkilegur. „Jörðin er eina plánetan í sólkerfinu þar sem hægt er að sjá almyrkva á sólu. Maður þarf líka að hafa ansi mikið fyrir því að sjá þá, því almyrkvar verða með að meðaltali 400 ára millibili frá einhverjum tilteknum stað á Jörðinni. Svo það þarf oftast að leggja á sig löng ferðalög til að komast á réttan stað.“ 

Al­myrkvi á sólu séður frá stjörnu­skoðun­ar­stöðunni La Silla í La …
Al­myrkvi á sólu séður frá stjörnu­skoðun­ar­stöðunni La Silla í La Higu­era í Chile í nótt. AFP

En hvað er þá merkilegra en almyrkvi á sólu? 

 „Það er aðeins tvennt annað sem ég held að sé fallegra að sjá í sólkerfinu með eigin augum: Hringir Satúrnusar í návígi og plánetan Jörð frá tunglinu. Ég get ekki beðið eftir því að sjá það.“ 

Einhver bið verður þó á því en Sævar Helgi mun halda áfram að grúska í stjörnufræðinni næstu daga í Síle, þar sem hann er í boði Stjörnustöðvar Evrópulanda á suðurhveli (e. European Southern Obsercatory, ESO). Sævar Helgi er tengiliður samtakanna á Íslandi og starfar einnig fyrir þau, en ESO á og rekur alla stærstu sjónaukana í stjörnustöðinni sem eru jafnframt stærstu sjónaukar í heiminum. 

Í dag lá leið Sævars Helga í Very Large Telescope-sjónaukaröðina (VLT), sem er flaggskip evrópskra stjarnvísinda og á morgun heimsækir hann stjörnusjónaukann ALMA, sem er hæsti og stærsti sjónauki í heiminum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert