Opna upplýsingagátt til að laða að hæft vinnuafl

Á myndinni sem tekin var við opnun vefjarins Work in …
Á myndinni sem tekin var við opnun vefjarins Work in Iceland í húsakynnum Alvotech eru, talið frá vinstri: Árni Harðarson, aðstoðarforstjóri Alvogen og stjórnarmaður Alvotech, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, og Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu Ljósmynd/Aðsend

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar, opnaði nýjan upplýsingavef sem fengið hefur nafni Work in Iceland, í húsakynnum Alvotech í dag. Vefurinn er heildstæð upplýsingagátt og hefur það að markmiði að kynna Ísland á ensku sem ákjósanlegan stað til búsetu og vinnu, en ekki síst að laða erlenda sérfræðinga til Íslands í sérfræði- og hátæknistörf.

Vefurinn er samstarfsverkefni Íslandsstofu, Samtaka iðnaðarins og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins en unnið hefur verið að gerð hans frá byrjun árs 2018.

Er þar m.a. að finna upplýsingar um ferlið við að sækja um atvinnu- og dvalarleyfi, tryggingar og skattamál. Eins mun Work in Iceland efla og styðja við markaðssetningu á Íslandi sem ákjósanlegum og eftirsóknarverðum stað í þeim tilgangi að laða fólk með sérfræðiþekkingu á ýmsum sviðum til landsins.

„Það er ótrúlega mikilvægt fyrir íslenskt atvinnulíf að laða hingað hæft fólk. Það þýðir að fleiri taka þátt í nýsköpun og verðmætasköpun sem er hagur okkar allra. Til þess eigum við að halda á lofti styrkleikum okkar sem eru mýmargir og fjölbreyttir. Verkefnið Work in Iceland er því mikill fengur og ég er sérstaklega glöð að hafa fengið að fylgja því eftir,“ er haft eftir ráðherra í frétt á vef Stjórnarráðsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert