Ísland í 26. sæti

AFP

Ísland er í 26. sæti af 141 á lista yfir ríki eftir samkeppnishæfni þeirra og hefur lækkað um tvö sæti á milli ára.

Í árlegri skýrslu Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum) kemur fram að Ísland er í nú 26. sæti á lista ríkja eftir samkeppnishæfni og færist niður um tvö sæti. Árið 2018 var Ísland í 24. sæti, í 28. sæti 2017 og 27. sæti 2016.

Á toppi listans trónir Singapúr, því næst koma Bandaríkin og loks Hong Kong, Holland og Sviss.

Af Norðurlöndunum er Svíþjóð efst eða í áttunda sæti og flyst upp um eitt sæti milli ára. Danmörk er í tíunda sæti og Finnland í því ellefta en bæði löndin halda sætum sínum frá síðustu könnun. Noregur er  í 17. sæti.

„Ráðið hefur tekið upp ný viðmið þar sem hafðar eru til hliðsjónar breytingar sem fylgja fjórðu iðnbyltingunni, m.a. hvað varðar samkeppnishæfni, sérstaklega á sviði stafrænnar þróunar, en einnig sköpun í samfélaginu, frumkvöðlamenningu og hversu opið, straumlínulagað og virkt samfélagið er. Í úttekt ráðsins er Ísland skilgreint sem nýsköpunardrifið hagkerfi og nýtur sem fyrr góðs af nokkrum sterkum samkeppnisþáttum eins og stöðu menntunar og heilbrigðismála, stöðugleika, aðlögunarhæfni og sveigjanleika vinnumarkaðar.

Helsti veikleiki Íslands, miðað við flest önnur lönd, er smæð heimamarkaðar. Þar erum við í 133. sæti af 141, en bætum okkur þó um 32,3 stig milli ára. Erfitt er að taka á þessu nema með því að hvetja fyrirtæki og frumkvöðla til að sækja á alþjóðamarkaði. Mælingin á samkeppnishæfni tekur mið af tólf stoðum og undir hverri er fjöldi viðmiða. Við hverja stoð og viðmið kemur fram sæti Íslands ásamt breytingum frá fyrra ári. Einnig kemur fram hvaða þjóðir eru fremstar á hverju sviði. Hér er því um að ræða handhægt vinnutæki í stjórnmálum og við stjórnsýslu og mælikvarða til að miða sig við.

Rannsókn ráðsins byggist á opinberum upplýsingum og könnun sem gerð er meðal stjórnenda í atvinnulífinu.

Nýsköpunarmiðstöð Íslands er samstarfsaðili Alþjóðaefnahagsráðsins og sá um framkvæmd könnunarinnar hér á landi,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert