Skýr tengsl lítils svefns og minna lífsgæða

Í rannsókninni var áhersla lögð á fjóra grunnþætti heilsu: andlega …
Í rannsókninni var áhersla lögð á fjóra grunnþætti heilsu: andlega heilsu, líkamlega heilsu, svefn og næringu og hvernig Íslendingar meta heilsu sína á þessum sviðum. Thinkstock

Sterk tengsl eru á milli þess að sofa að jafnaði sex klukkustundir á nóttu og að finna fyrir óhamingju, kvíða, streitu og lélegri heilsu.

Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar Gallup, Nox medical og samstarfsaðila, en niðurstöður rannsóknarinnar verða kynntar frekar á Heilbrigðisráðstefnu Gallup í Hörpu 6. nóvember næstkomandi. 

Í rannsókninni var áhersla lögð á fjóra grunnþætti heilsu: andlega heilsu, líkamlega heilsu, svefn og næringu og hvernig Íslendingar meta heilsu sína á þessum sviðum.

 „Þetta eru áhugaverðar niðurstöður sem verða kynntar nánar á ráðstefnunni. Sem betur fer eru sífellt fleiri að verða meðvitaðir um mikilvægi svefns en mér hefur oft fundist svefninn vera vanmetin grunnstoð heilsu og til dæmis hafa fengið minni vægi í umræðunni samanborið við hreyfingu og næringu síðastliðin ár.  Þrátt fyrir aukna meðvitund er ljóst að stór hluti landsmanna er vansvefta og skýr tengsl eru milli of lítils svefns og lakari heilsu og lífsgæða. Því er mikilvægt að huga að þáttum sem geta stuðlað að aukinni fræðslu um svefn og inngripum er miða að því að aðstoða fólk er glímir við svefnvanda.“, segir Erla Björnsdóttir hjá Betri svefni og einn af fyrirlesurum ráðstefnunnar. 

„Góð heilsa skiptir öllu máli og niðurstöðurnar úr könnuninni eru ákaflega áhugaverðar, sérstaklega í ljósi þess að átta af hverjum tíu vilja breyta lifnaðarháttum sínum til betri vegar. Það er misjafnt eftir því hvar fólk er statt á lífsleiðinni hvernig það er hægt að mæta þessum góða vilja til að ná árangri“ segir Ólafur Elínarson, sviðsstjóri markaðsrannsókna Gallup.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert