Geta geymt kynfrumur í 20 ár

Breytingin er einkum til hagsbóta fyrir ungt fólk sem af …
Breytingin er einkum til hagsbóta fyrir ungt fólk sem af einhverjum ástæðum vill geyma kynfrumur sínar lengur en nú er heimilt. Ljósmynd/Thinkstock

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að breyta reglugerð um tæknifrjóvgun þannig að hámarksgeymslutími kynfruma verði lengdur úr tíu árum í tuttugu.

Breytingin er einkum til hagsbóta fyrir ungt fólk sem af einhverjum ástæðum vilja geyma kynfrumur sínar lengur en nú er heimilt, til dæmis vegna illkynja sjúkóma, kynleiðréttingarferlis eða af öðrum ástæðum, að því er heilbrigðisráðuneytið greinir frá.

Þá segir, að ákvörðun heilbrigðisráðherra um að lengja hámarksgeymslutíma kynfruma styðji við framkvæmd laga um kynrænt sjálfræði sem samþykkt voru á Alþingi í júlí síðastliðnum og snúa að því að tryggja réttindi trans- og intersex fólks.

„Í samræmi við bráðabirgðaákvæði laganna vinna tveir starfshópar skipaðir af forsætisráðherra að því að skoða hvaða lagabreytingar þarf að gera í þessu skyni og eru þar m.a. til skoðunar lög nr. 55/1996 sem snúa meðal annars að tæknifrjóvgun,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert