Ný uppgötvun „gæti meðhöndlað öll krabbamein“

Teymi vísindamanna við Cardiff-háskóla í Bretlandi hefur fundið leið til …
Teymi vísindamanna við Cardiff-háskóla í Bretlandi hefur fundið leið til þess að nýta nýlega uppgötvaðan hluta ónæmiskerfis mannsins til þess að ráðast til atlögu við krabbameinsfrumur. Ljósmynd/Cardiff-borg

Teymi vísindamanna við Cardiff-háskóla í Bretlandi hefur fundið leið til þess að nýta nýlega uppgötvaðan hluta ónæmiskerfis mannsins til þess að ráðast til atlögu við krabbameinsfrumur. Rannsóknirnar eru á algjöru frumstigi, en hafa mikla möguleika, að sögn hópsins sem skrifaði vísindagrein um tilraun sína í fræðitímaritið Nature Immunology.

Segist rannsóknarteymið hafa fundið leið til þess að ráðast að krabbameini í blöðruhálskirtli, brjóstum, lungum og fleiri líffærum, sem hafi gefið góða raun á rannsóknarstofunni. Enn er ekki búið að prófa aðferðina á sjúklingum.

BBC fjallar um málið og hefur eftir sérfræðingum við háskólann í Basel og háskólann í Manchester að vinnan sé ekki langt komin, en mjög spennandi.

Í frétt miðilsins segir að ónæmiskerfi mannsins sé náttúruleg vörn okkar gegn sýkingum, en leggi einnig til atlögu við krabbameinsfrumur. Vísindamennirnir við Cardiff-háskóla vildu finna „óhefðbundnar“ og áður óuppgötvaðar leiðir til þess að nýta þessa náttúrulegu vörn mannslíkamans gegn krabbameinsæxlum og komust að því að ákveðnar gerðir af T-frumum í blóði fólks geti verið nýttar til þess að ráðast gegn margvíslegum tegundum krabbameina.

„Það er möguleiki hérna á því að meðhöndla hvern einasta sjúkling,“ segir prófessorinn Andrew Sewell, sem vann að rannsókninni. „Áður trúði enginn að þetta væri mögulegt,“ bætir hann við, í samtali við BBC.

Ein aðferð fyrir fjölda meina

Hann segir að þessi uppgötvun veki von um að hægt verði að búa til eina krabbameinsmeðferð sem henti næstum því öllum, þar sem þessi eina tegund T-frumna fari um líkamann, finni og ráðist gegn fjölmörgum mismunandi krabbameinsfrumum. Að auki hafi komið í ljós, sem sé mikilvægt, að T-frumurnar ráðist ekki gegn heilbrigðum frumum líkamans.

Notkun T-frumna er þekkt í baráttunni gegn krabbameini og hefur líftæknilyfið CAR-T hjálpað mörgum sjúklingum með tilteknar gerðir krabbameina, sérstaklega blóðkrabbameina á borð við hvítblæði, frá því það kom á markað í kjölfar ónæmisrannsókna.

Þessi nýja uppgötvun vekur vonir um að hægt verði að nota T-frumur með sama hætti til þess að ráðast á fleiri gerðir krabbameinsfrumna, í fyllingu tímans.

Frétt BBC um málið

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert