Halldór Bjarki hlýtur nýsköpunarverðlaun

Halldór Bjarki Ólafsson, nemi í læknisfræði, og Guðni Th. Jóhannesson, …
Halldór Bjarki Ólafsson, nemi í læknisfræði, og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands. Ljósmynd/Aðsend

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Halldór Bjarki Ólafsson, nemi í læknisfræði við læknadeild Háskóla Íslands, hlaut verðlaunin fyrir verkefnið Tengsl óeðlilegs blóðhags við bráða fylgikvilla og langtímaútkomu eftir skurðaðgerðir.

Leiðbeinandi var Martin Ingi Sigurðsson, sérfræðingur í svæfinga- og gjörgæslulækningum á Landspítala og kennari við Háskóla Íslands. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti verðlaunin.

Um verkefnið

Í verkefninu voru tengsl milli breytileika í stærð rauðra blóðkorna og skamm- og langtímadánartíðni eftir skurðaðgerðir könnuð, en slíkur breytileiki er mældur fyrir nær allar aðgerðir. Til þess voru upplýsingar úr íslenska aðgerðagagnagrunninum notaðar, en hann inniheldur upplýsingar um hartnær 40 þúsund skurðaðgerðir framkvæmdar á Landspítala.

Í ljós kom að einstaklingar með aukinn breytileika höfðu hærri dánartíðni í kjölfar skurðaðgerða samanborið við viðmiðunareinstaklinga með eðlilegan breytileika. Þessum áhrifum er mögulega miðlað gegnum langvinnt bólguástand eða vannæringu, sem hefur áhrif á stærðardreifnina.

Niðurstöðurnar benda til þess að mæling á stærðardreifni rauðra blóðkorna megi nota til að áhættuflokka einstaklinga fyrir aðgerð. Næstu skref verkefnisins miða að því að kanna hvort unnt sé að hafa áhrif á stærðardreifnina eða nota hana til að fylgjast með árangri inngripa sem ætlað er að bæta horfur aðgerðarsjúklinga, svo sem forhæfingu eða leiðréttingu næringarástands fyrir aðgerð.

Vonast er til að niðurstöðurnar muni bæta horfur aðgerðasjúklinga sem mun þá hafa mikinn ávinning í för með sér fyrir þá sem og heilbrigðiskerfið sjálft.

Fjögur önnur verkefni fengu sérstaka viðurkenningu:

Litun sjávarleðurs úr íslenskum plöntum
Verkefnið var unnið af Sigmundi Páli Freysteinssyni, nema í fatahönnun við hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands. Leiðbeinandi var Katrín María Káradóttir, aðjúnkt og fagstjóri fatahönnunarbrautar Listaháskóla Íslands.

Möguleikar melgresis (Leymus arenarius)
Verkefnið var unnið af Signýju Jónsdóttur og Sveini Steinari Benediktssyni, nemum í hönnun við Listaháskóla Íslands, í samstarfi við Landgræðsluna, Listaháskóla Íslands og Kjartan Óla Guðmundsson, vöruhönnuð og matreiðslumann. Leiðbeinendur verkefnisins voru Garðar Eyjólfsson, fagstjóri meistaranáms í hönnun við Listaháskóla Íslands, Magnús H. Jóhannsson, sviðsstjóri þróunarsviðs Landgræðslunnar, og Rúna Thors, fagstjóri vöruhönnunar við Listaháskóla Íslands.

Notendahugbúnaður Wave
Verkefnið var unnið af þeim Eddu Pétursdóttur, meistaranema í hugbúnaðarverkfræði við Háskólann í Reykjavík, og Freyju Sigurgísladóttur, nema í tölvunarfræði við Háskóla Íslands. Leiðbeinendur voru þeir Ólafur Bjarki Bogason, Haraldur Hugosson, Daníel Grétarsson og Jón Helgi Hólmgeirsson, stofnendur Genki Instruments.

Nýjar afurðir þörunga

Verkefnið var unnið af Hildi Margréti Gunnarsdóttur og Snædísi Guðrúnu Guðmundsdóttur, nemum í heilbrigðisverkfræði við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík. Verkefnið var unnið í samstarfi við fyrirtækið SagaNatura. Leiðbeinendur voru Gissur Örlygsson, verkefnastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Lilja Kjalarsdóttir, Halla Jónsdóttir, Sigurbjörn Einarsson og Páll Arnar Hauksson hjá SagaNatura.

Allir tilnefndir styrkþegar sjóðsins fengu viðurkenningarskjal undirritað af forseta Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert