Kría í samráðsgátt

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur lagt fram drög að frumvarpi nýsköpunarráðherra til laga um opinberan stuðning til fjárfestinga í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum í Samráðsgátt stjórnvalda. 

Frumvarpið felur í sér að stofnaður verði nýr sjálfstæður sjóður í eigu ríkisins sem kallast Kría um fjárfestingu í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum. Sjóðurinn hefur það hlutverk að fjárfesta í öðrum sérhæfðum sjóðum sem fjárfesta í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum, svokölluðum vísisjóðum eða venture capital-sjóðum. Sjóðnum er ætlað að stuðla þannig að uppbyggingu, vexti og aukinni samkeppnishæfni atvinnulífsins með því að hér á landi verði til heilbrigt umhverfi áhættufjármagns til fjárfestingar í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum.

„Með Kríu eflum við vöxt og samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og stuðlum að virku fjármögnunarumhverfi fyrir sprota- og nýsköpunarfyrirtæki. Þegar við kynntum Nýsköpunarstefnu fyrir Ísland í haust var það undir þeim formerkjum að gera Ísland betur í stakk búið að mæta áskorunum framtíðarinnar með því að byggja upp traustan grundvöll fyrir hugvitsdrifna nýsköpun á öllum sviðum. Í óvissunni sem við búum öll við núna er nauðsynlegt að hlúa að nýsköpun í landinu og horfa til framtíðar. Við verðum að stuðla að þroskuðu umhverfi nýsköpunarfjárfestinga og Kría rennir stoðum undir það,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir nýsköpunarráðherra á vef ráðuneytisins. 

Með frumvarpinu er aðgerðum í Nýsköpunarstefnu komið í framkvæmd með að leggja til umgjörð utan um aðkomu ríkisins að ákveðinni tegund af sérhæfðum áhættufjárfestingarsjóðum. Slíkir sjóðir eru ólíkir hefðbundnum fjárfestingarsjóðum meðal annars að því leyti að þeir hafa að jafnaði meiri áhrif á stefnumótun, rekstur og almenna ákvarðanatöku í þeim fyrirtækjum sem sjóðirnir fjárfesta í. 

Rannsóknir og reynsla annarra þjóða hafa sýnt fram á mikilvægi slíkra sjóða fyrir nýsköpunarumhverfið, en þar sem slíkir sjóðir taka mikinn þátt í uppbyggingu fyrirtækja leiðir það til þess að fleiri vel heppnuð fyrirtæki verða til, í þeim skilningi að þau vaxa hraðar, skapa fleiri störf og meiri verðmæti en fyrirtæki sem njóta ekki slíkrar fjármögnunar.

„Nú síðast í gær sótti íslenska nýsköpunarfyrirtækið Mainframe Technologies tæpar 1.200 milljónir til erlendu fjárfestanna Andreessen Horowitz, sem eru með eftirsóttustu fjárfestum í nýsköpun og hátækni í heiminum. Áður hafði íslenskur vísisjóður stutt við það fyrirtæki, sem sýnir svart á hvítu virðið í því að hafa virka, alþjóðlega samkeppnishæfa nýsköpunarfjárfesta staðsetta hér á landi, en Kría mun styðja við þá þróun,“ segir Þórdís Kolbrún enn fremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert