Nefnd um gervigreind sett á fót

Unnið er að stefnu um gervigreind í forsætisráðuneytinu.
Unnið er að stefnu um gervigreind í forsætisráðuneytinu. Ljósmynd/Aðsend

Forsætisráðuneytið vinnur nú að stefnu um gervigreind, sem miðar að því að hámarka samfélagslegan og efnahagslegan bata innan samfélagsins að því er fram kemur á vef Stjórnarráðsins.

Hefur því Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra skipað nefnd sem er ætlað að skila tillögum að skýrri framtíðarsýn um hvernig íslenskt samfélag geti unnið með gervigreind.

Á nefndin að leita svara við spurningum á borð við hver réttindi Íslendinga séu gagnvart nýrri tækni, hvert hlutverk tækni gervigreindar eigi að vera í íslensku samfélagi og á hvaða vettvangi Ísland mun ræða og leysa álitamál sem koma upp varðandi innleiðingu eða notkun nýrrar tækni. Nefndin mun skila tillögum til ráðherra fyrir 1. febrúar 2021.

Verkefnið er hluti af aðgerðaráætlun fyrir Ísland í fjórðu iðnbyltingunni en nefndina skipa einstaklingar með fjölbreyttan bakgrunn og sérfræðiþekkingu er snýr meðal annars að siðfræði, tækni, vinnumarkaði og samfélagslegum breytingum vegna nýrrar tækni. Nefndina skipa:

  • Lilja Dögg Jónsdóttir, sérfræðingur í forsætisráðuneytinu (formaður nefndarinnar)
  • Kolbeinn H. Stefánsson, lektor við Háskóla Íslands
  • Ólafur Andri Ragnarsson, aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík
  • Þorbjörn Kristjánsson, doktorsnemi í heimspeki við Háskólann í Sheffield
  • Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert