Loks hægt að spjalla við símann

Hægt er að nálgast Emblu í vefverslunum fyrir Apple og …
Hægt er að nálgast Emblu í vefverslunum fyrir Apple og android síma.

Íslenska sprotafyrirtækið Miðeind hefur gefið út app sem gerir Íslendingum kleift að tala við símann á móðurmálinu. Appið ber nafnið Embla og það má nálgast í Verslun Apple - Apple App Store og Google Play Store fyrir android síma. Forritið má nálgast án greiðslu. 

Í tilkynningu frá Miðeind segir að Embla geti svarað ýmsum tegundum spurninga, svo sem um opnunartíma verslana, veður og veðurspá, fólk og mælieiningar. Til dæmis má spyrja hana: Hvað er opið lengi í Melabúðinni? Hvað er langt í jólin? Hver er Vigdís Finnbogadóttir? Hvað segir Wikipedia um granít? Hvernig er veðrið í Borgarnesi? Hún getur líka sagt hvað klukkan er, reiknað einföld stærðfræðidæmi, lesið upp fréttayfirlit og breytt upphæðum á milli gjaldmiðla.

Þá segir að í Emblu sé ítarleg virkni fyrir Strætó, en notendur geta spurt hana hvar og hvenær strætisvagnar stoppa, hvaða stoppistöð sé næst og hvaða vagnar stoppi þar.  Þá hefur hún rauntímaupplýsingar um ferðir vagna og getur sagt hvort strætó sé seinn eða á undan áætlun.

Eins segir í tilkynningu að Embla byggi m.a. á tækni sem þróuð hefur verið undir hatti fimm ára máltækniáætlunar stjórnvalda og Almannaróms. Engar auglýsingar eru í Emblu og farið er með gögn samkvæmt skýrri persónuverndarstefnu.

Fram kemur að Embla hefur verið í þróun hjá Miðeind undanfarið eitt og hálft ár. Miðeind sérhæfir sig í máltækni og gervigreind fyrir íslensku, en þar starfa nú átta manns.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert