Skóflustungur teknar að stækkun hátækniseturs Alvotech í Vísindagörðum HÍ

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, Róbert Wessman, stjórnarformaður fyrirtækisins, …
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, Róbert Wessman, stjórnarformaður fyrirtækisins, og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri tóku fyrstu skóflustungurnar í dag. Ljósmynd/Aðsend

Fyrstu skóflustungur voru teknar í dag að viðbyggingu við hátæknisetur líftæknifyrirtækisins Alvotech í Vatnsmýri í Reykjavík. Róbert Wessman, stjórnarformaður fyrirtækisins, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands tóku fyrstu skóflustungurnar ásamt lykilstarfsmönnum sem komið hafa að verkefninu.

Viðbyggingin, sem verður 12.500 fermetrar, er nánast tvöföldun á núverandi aðstöðu Alvotech  í Vísindagörðum HÍ, í Vatnsmýri og eru verklok áætluð í lok árs 2022.

Alvotech er með átta líftæknilyf í þróun, sem munu fara á markað á næstu árum og skapa verulegar útflutnings- og gjaldeyristekjur hér á landi. Gert er ráð fyrir að starfsmannafjöldi fyrirtækisins á Íslandi muni fara úr 410 í um það bil 580 þegar hátæknisetrið verður tilbúið, að megninu til sérfræðingar með háskólamenntun, að því er segir í tilkynningu.

Fjárfesting í stækkuninni er áætluð ríflega 10 milljarðar króna, en …
Fjárfesting í stækkuninni er áætluð ríflega 10 milljarðar króna, en heildarfjárfesting Alvotech í húsnæði, tækjum og þróun á Íslandi, frá stofnun til ársloka 2020, nemur ríflega 100 milljörðum króna. Ljósmynd/Aðsend

„Það er einstaklega ánægjulegt að ljúka þessu erfiða ári sem einkenndist af baráttunni við Covid-19 veiruna, með svona jákvæðu skrefi til framtíðaruppbyggingar fyrirtækisins. Það var hvorki sjálfgefið né auðvelt, í miðjum gjaldeyrishöftum árið 2013, að taka ákvörðun um að byggja fyrirtækið Alvotech upp á Íslandi. Eftir ítarlega skoðun á mörgum kostum var það að lokum ákvörðun stjórnenda að staðsetja fyrirtækið hér á landi. Það er því einstaklega ánægjulegt, nú sjö árum seinna að tvöfalda aðstöðuna á Íslandi og gera fyrirtækið þannig í stakk búið til alþjóðlegrar markaðssetningar á fyrstu líftæknilyfjunum. Væntingar okkar eru að Alvotech verði ein af stoðum Íslands til öflunar gjaldeyristekna. Ég vil þakka stjórnendum Reykjavíkurborgar, Háskóla Íslands og Vísindagarða fyrir samstarfið,“ segir Róbert Wessman, stjórnarformaður Alvotech, í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert