Reykjavíkurborg býður frítt internet á völdum stöðum

WiFi4EU - Free Wifi for Europeans er verkefni á vegum …
WiFi4EU - Free Wifi for Europeans er verkefni á vegum Evrópusambandsins sem styrkir uppsetningu á opnum þráðlausum netum fyrir almenning á vegum sveitarfélaga innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) með 15 þúsunda evra framlagi. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Nú gefst íbúum og gestum Reykjavíkur tækifæri til að tengjast internetinu án endurgjalds á völdum stöðum innan borgarinnar. Þessir staðir eru meðal annars við Listasafn Reykjavíkur í Hafnarhúsinu, við Ráðhús Reykjavíkur, við Kjarvalsstaði á Klambratúni og við Laugardalslaug. 

Einungis þarf að opna staðarnetið WiFi4EU í snjalltækinu og með einum smelli eru notendur komnir með gjaldfrjálsan aðgang að internetinu, að því er Reykjavíkurborg greinir frá.

Þar segir, að WiFi4EU - Free Wifi for Europeans sé verkefni á vegum Evrópusambandsins sem styrki uppsetningu á opnum þráðlausum netum fyrir almenning á vegum sveitarfélaga innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) með 15 þúsunda evra framlagi. Með uppsetningu á 10 sendum við valin almenningssvæði bætist Reykjavík í hóp rúmlega 20 sveitarfélaga á Íslandi og tæplega 30 þúsund borga og bæja um gjörvalla Evrópu sem bjóða opið internet. WiFi4EU uppfyllir alla nýjustu staðla og er öflugt, öruggt og afkastamikið netkerfi.

„Verkefnið hér á landi er unnið í samstarfi við sérfræðinga Sensa sem sjá um uppsetningu og rekstur þráðlausa netsins fyrir Reykjavíkurborg. Sensa er vottaður samstarfsaðili Cisco Meraki en netlausnin samanstendur af Meraki skipti (e. Switch) með svokölluð „multigigabit“ tengimöguleika sem m.a. gerir Wi-Fi 6 notkun mögulega í framtíðinni. Miðlægur Meraki eldveggur sér um að hámarka öryggi og verja alla notendur sem nýta sér frítt internet á þessum stöðum. Cisco hefur með Meraki netlausnum verið leiðandi búnaður þegar kemur að því að byggja upp örugg opin netkerfi hjá fyrirtækjum og stofnunum sökum áreiðanleika og öryggi,“ segir í tilkynningu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert