Þrjár meginstoðir þess að upplifa tilgang í lífinu

Okkar trú er hins vegar að allir geti upplifað tilgang …
Okkar trú er hins vegar að allir geti upplifað tilgang í lífinu - því það hafa allir eitthvað fram að færa í þessum heimi, skrifa Hermundur og Bergsveinn. Eggert Jóhannesson

Það er flókið að finna tilgang í lífinu, en um leið er það eitt það mikilvægasta, skrifa Hermundur Sigmundsson og Bergsveinn Ólafsson. Um leið segjast þeir hafa trú á að allir geti upplifað tilgang í lífinu – því allir hafi eitthvað fram að færa í þessum heimi:

Tilgang í lífinu (e. Meaning in life) er í grunninn hægt að skilgreina sem líf sem er dýrmætt og þess virði að lifa. Tilgangur í lífinu virðist vera nauðsynlegur eiginleiki. Mikill tilgangur í lífinu hefur sterk tengsl við frekari sálfræðilega vellíðan allt frá unglingsaldri til efri fullorðinsára, lífsánægju, hamingju, heilsu og langlífi. Lítill tilgangur í lífinu eykur líkur á sjálfsvígshugsunum, fíknivandamálum og andlegum kvillum líkt og kvíða og þunglyndi. Tilgangur í lífinu er því lykilþáttur í að koma í veg fyrir og að geta fengist við andlega erfiðleika. Hér er mikilvægt að nefna að ekki er verið að ræða um hinn eina sanna tilgang lífsins heldur persónulegan tilgang í lífinu.

Meginstoðir þess að upplifa tilgang í lífinu eru þrjár: Að hafa tilgang (e. purpose), að skilja samhengi (e. coherence) og þýðing/mikilvægi (e. significance). Hér að neðan eru stuttar hugleiðingar um meginstoðirnar og tengingar þeirra við Viktor Frankl, sem skrifaði bókina Leitin að tilgangi lífsins (sem við mælum eindregið með). Viktor var fangi í Auschwitz og í bókinni lýsir hann upplifun sinni í búðunum og hvernig hann komst af.

Tilgangur – hvatningarþátturinn

Tilgangur er í grunninn er að hafa fullnægjandi stefnu sem þú færð mikla hvatningu af að framfylgja. Margir ruglast á tilgangi og markmiðum en lýsa má tilgangi sem einhvers konar æðra markmiði. Tilgangur stjórnar og hefur áhrif á markmiðin sem maður setur sér. Markmið eru mælanlegri og nákvæmari en tilgangur. Munurinn á tilgangi og markmiðum er að þú nærð ekki endilega tilgangi heldur er það stefna sem heldur áfram þrátt fyrir að þú náir markmiðunum þínum. Tilgangur er yfirleitt ástæðan fyrir markmiðunum þínum. Tilgangur er vegferð en ekki áfangastaður.

Hermundur Sigmundsson er prófessor við Háskólann í Reykjavík og Norska …
Hermundur Sigmundsson er prófessor við Háskólann í Reykjavík og Norska tækni- og vísindaskólann í Þrándheimi. Kristinn Magnússon

Tilgangur Viktors í hryllingnum í fangabúðunum var að hann vildi gefa út sálfræðimeðferð sem byggðist á upplifun hans í búðunum með þeirri von um að hún myndi hjálpa öðrum að finna tilgang í lífinu þrátt fyrir að vera í vonlausum aðstæðum. Það hélt honum gangandi ásamt von um að hitta fjölskylduna sína einn daginn.

Tilgangur er misjafn eftir einstaklingum. Fyrir suma er það að vera besta útgáfan af sjálfum sér en fyrir aðra er hún að hjálpa öðrum, fórna sjálfum sér fyrir aðra, skapa hluti, stuðla að betra samfélagi, lifa heilsusamlegu lífi, sýna ást og umhyggju, ná árangri eða tengjast fólki. Þessi tilgangur getur verið missterkur á ólíkum sviðum lífsins. Sem dæmi gætir þú fundið fyrir því að þú sért að verða besta útgáfan af sjálfum þér í vinnunni en ekki alveg sem maki eða fjölskyldufaðir. Þú getur líka haft ólíkan tilgang á misjöfnum sviðum lífsins. Hann gæti snúist um að vera skapandi í vinnunni en sýna ást og umhyggju í samskiptum við aðra.

Ágætis þumalputtaregla virðist vera að því meira sem þú setur athyglina á aðra en sjálfan sig, því meiri tilgang upplifir þú. Að það sem þú tekur þér fyrir hendur hafi góð áhrif á aðra, stuðli að betra samfélagi og jafnvel betri heimi í heild sinni. Að þú sért að sinna hlutverki sem tengist einhverju stærra og skiptir meira máli fyrir aðra en þína eigin hagsmuni. Því er best ef þinn persónulegi tilgangur skiptir máli fyrir þig á þann hátt að hann hafi jafnframt góð áhrif á aðra.

Samhengi – hugræni þátturinn

Samhengi er að skilja sjálfan sig, upplifanir og heiminn í kringum sig. Það er innbyggt í okkur mannfólkið að þurfa að skilja og draga einhverja merkingu úr lífinu, aðstæðunum sem við erum að eiga við eða atburðum sem við lendum í. Krafturinn í því er að við getum valið merkinguna sem við drögum úr upplifunum og atburðum.

Aðalmerkingin sem Viktor dró úr Auschwitz sem við getum lært af er að sama í hvaða aðstæðum þú lendir í lífinu er aldrei hægt að taka það frá þér hvernig þú velur að bregðast við þeim.

Bergsveinn Ólafsson er fyrirlesari með MSc-gráðu í jákvæðri sálfræði og …
Bergsveinn Ólafsson er fyrirlesari með MSc-gráðu í jákvæðri sálfræði og þjálfunarsálfræði.

Þú öðlast merkingu með því að segja sögur því við tölum mestmegnis í sögum og það hjálpar þér við að átta þig á atburðum og þér sjálfum. Þú segir sögu með því að tala við aðra eða skrifa. Eitt er vitað og það er að þeim, sem segja sögur þar sem þeir túlka að neikvæður atburður hafi haft eitthvað gott í för með sér, tekst mikið betur að eiga við erfiðleika, líður betur og upplifa aukinn tilgang í lífinu samanborið við þá sem túlka að hann hafi einungis haft neikvæðar afleiðingar.

Við teljum að sjálfsþekking leiki líka stórt hlutverk í að skilja samhengið í lífinu. Sjálfsþekking er meðal annars að vita hvað maður stendur fyrir og á hvað maður trúir. Þar að auki, þar sem við erum félagsverur, þá trúum við sannarlega á að það að tilheyra (e. belonging) skipti miklu máli. Við þurfum öll að finna að við séum sýnileg, heyrð og elskuð. Að finna að það sem við gerum skipti máli fyrir aðra og að hlutverk okkar sé mikilvægt.

Þýðing – tilfinningalegi þátturinn

Þýðing er að upplifa að lífið sé mikilvægt í sjálfu sér og þess virði að lifa. Oft getur það verið afleiðing þess að þú sért með hinar áðurnefndu meginstoðir tilgangs í lífinu.

Algjört lykilatriði hér er sjálfslyfting (e. self-trancendence), sem er að rísa yfir sjálfan þig og tengjast einhverju sem er stærra en þú sjálfur. Það eru öll þessi sjaldgæfu augnablik þegar þú hefur þig yfir ys og þys hversdagsins, sjálfsvitund þín hverfur og þér líður eins og þú sért tengdur einhverjum æðri raunveruleika. Hver þessi æðri raunveruleiki er fer eftir einstaklingum. Fyrir suma er það annað fólk en fyrir aðra getur það verið náttúran, heimurinn eða einhver önnur æðri öfl.

Í þessu samhengi er líka hægt að nefna flæði (e. flow), sem er upplifun þar sem þú ert himinlifandi og í þínu besta ástandi. Tíminn líður oftast eins og brennandi eldspýta og þú ert algjörlega sokkinn í það sem þú ert að gera.

Sjálfslyftingin hans Viktors var meðal annars að nýta hvert augnablik í að hlæja með föngunum í fangabúðunum sem lét hann gleyma sjálfum sér og þeim aðstæðum sem hann var í. Þó svo að hann væri að ganga í gegnum hrylling þá nýtti hann hvert augnablik til að hlæja. Við upplifum sjálfslyftingu þegar við skrifum, förum í sund eða sjósund og heitu pottana, á æfingu og í innihaldsríkum samræðum við aðra svo eitthvað sé nefnt.

Lokaorð

Tilgangur í lífinu er verulega flókið viðfangsefni en eitt af því allra mikilvægasta til að hafa í lífinu. Það er engin ein leynileið að upplifa tilgang í lífinu og þú þarft alls ekki að hafa allar meginstoðirnar að ofan á hreinu. Okkar trú er hins vegar að allir geti upplifað tilgang í lífinu – því það hafa allir eitthvað fram að færa í þessum heimi. Hvort sem þeir upplifi hann með því að framfylgja mikilvægri stefnu, öðlast merkingu, með öðru fólki eða með sjálfslyftingu – þá geta þessar meginstoðir hjálpað okkur, rétt eins og Viktori, að tækla það krefjandi ævintýri sem lífið er.

Hermundur er prófessor við Háskólann í Reykjavík og Norska tækni- og vísindaháskólann í Þrándheimi og Bergsveinn er fyrirlesari með MSc-gráðu í jákvæðri sálfræði og þjálfunarsálfræði.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert