Covid-próf á 12 mínútum

Olga Ýr Björgvinsdóttir, sérfræðingur hjá Arctic Therapeutics. Sýni eru greind …
Olga Ýr Björgvinsdóttir, sérfræðingur hjá Arctic Therapeutics. Sýni eru greind með þessu litla tæki sem Olga heldur á. Ljósmynd/Akureyri.net/ Skapti Hallgrímsson.

Fyrirtækið Arctic Therapeutics á Akureyri hefur undanfarið boðið upp á Covid-hraðpróf, sem er jafn áreiðanlegt og PCR-prófið sem notast hefur verið við hérlendis, að sögn stofnanda fyrirtækisins, Hákonar Hákonarsonar, læknis í Bandaríkjunum. Þetta kemur fram á vefnum Akureyri.net. 

Aðeins tekur 12 mínútur að greina sýni. Hákon hefur mikinn áhuga á að prófið verði notað á heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum úti um land og segir að það gæti einnig nýst vel við prófun ferðamanna við komuna til landsins.

Prófið er að því leyti ólíkt PCR að það skimar eftir próteini í veirunni en ekki erfðaefni.

Arctic Therapeutics fékk fyrir nokkru leyfi heilbrigðisráðuneytisins til að nota prófið hér á landi og hefur verið í samstarfi við fyrirtæki á Akureyri undanfarið og segir Olga Ýr Björgvinsdóttir, sérfræðingur hjá félaginu, að mjög vel hafi gengið.

„Prófið er mjög nákvæmt, alveg jafn nákvæmt og staðlaða PCR-prófið; og jafnt nákvæmt hvort sem sýni er tekið úr koki eða fremst úr nefi,“ segir Hákon Hákonarson við Akureyri.net. Hann segir hraðprófið mun ódýrara en PCR.

Hákon hefur sent heilbrigðisráðuneytinu fyrirspurn um að nota prófið hér á landi og vonast eftir svari í þessum mánuði. Segir hann að ef af yrði gæti það létt mörgum lífið, til dæmis þeim sem liggja á sjúkrahúsum, íbúum hjúkrunarheimila og ættingjum þeirra. „Heimsóknir fólks hafa verið mjög takmarkaðar en væri þetta próf notað væri hægt að prófa ættingja og niðurstaða legið fyrir eftir 12 mínútur.“

Fáist leyfi til að taka prófin upp á heilsugæslustöðvum úti um land segir Hákon að fyrirtækið myndi kaupa tæki og setja upp, og hans fólk á Akureyri sjá um þjálfun starfsmanna. „Mér finnst mjög spennandi ef þetta verður hægt. Okkar fólk á Akureyri yrði nettengt öllum þessum stöðum, niðurstaða úr prófi kæmi beint til okkar á Arctic og ef niðurstaða yrði jákvæð tilkynntum við það strax til sóttvarnalæknis.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert