Covid-tilgátur þarfnist frekari rannsókna

Upptök veirunnar eru rakin til kínversku borgarinnar Wuhan.
Upptök veirunnar eru rakin til kínversku borgarinnar Wuhan. AFP

Fram­kvæmda­stjóri Alþjóðaheil­brigðismála­stofn­un­ar­inn­ar WHO sagði að allar tilgátur varðandi uppruna kórónuveirunnar væru enn á borðinu og rannsaka þyrfti málið frekar. Sú rannsókn yrði byggð á skýrslu sérfræðinga sem hafa verið að störfum í Wuhan í Kína.

Nefndin telur að veiran hafi fyrst borist í menn frá leðurblöku með milligöngu annars dýrs og að engar líkur sé á að veiran eigi upptök sín í rannsóknarstofu.

Tedros Adhanom Ghebr­eyes­us, framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, sagði að sérfræðingarnir sem fóru til Wuhan myndu kynna niðurstöður sínar fyrir aðildarríkjum WHO á morgun.

Í framhaldi af því myndi skýrsla þeirra verða aðgengileg á vef WHO.

Tedros Adhanom Ghebreyesus, fram­kvæmda­stjóri Alþjóðaheil­brigðismála­stofn­un­ar­inn­ar WHO.
Tedros Adhanom Ghebreyesus, fram­kvæmda­stjóri Alþjóðaheil­brigðismála­stofn­un­ar­inn­ar WHO. AFP

„Það verður mjög mikilvægt að hlusta á það sem þeir hafa fram að færa,“ sagði Tedros á fréttamannafundi í dag.

Fram kemur í niðurstöðu sérfræðinganna að kenningin um að veiran hafi borist í menn úr tilraunastofu sé afar ólíkleg.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert