Samstarf á sviði vísinda

Lilja Alfreðsdóttir átti veffund með Koichi Hagiuda, mennta- og vísindamálaráðherra …
Lilja Alfreðsdóttir átti veffund með Koichi Hagiuda, mennta- og vísindamálaráðherra Japan. Ljósmynd/Aðsend

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra átti í dag fund með Koichi Hagiuda mennta- og vísindamálaráðherra Japans.

Á fundinum var undirritað samstarfssamkomulag sem er ætlað að efla samstarf þjóðanna á vettvangi menntunar, vísinda, tækni og nýsköpunar og styrkja enn frekar tengslin milli landanna samkvæmt tilkynningu.

„Þetta samkomulag snertir mikilvæga þætti eins og samvinnu, skoðanaskipti, tengslamyndun og miðlun þekkingar milli landanna. Þá er því ætlað að stuðla að sameiginlegum rannsóknaverkefnum, til dæmis á sviðum norðurslóðavísinda og sjávarrannsókna sem og rannsóknum á vettvangi endurnýjanlegra orku, og hug- og félagsvísinda,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra í fréttatilkynningu.

Fundurinn í dag var upptaktur að öðrum viðburði, þriðja fundi vísindamálaráðherra um norðurskautið (e. Arctic Science Mininsterial) en Ísland og Japan eru sameiginlegir gestgjafar þess fundar sem fram fer nú um helgina, 8.-9. maí 2021, með þátttöku 28 ríkja og sex frumbyggjasamtaka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert