Stærsta úthlutun Vísindasjóðs til þessa

Sigríður Gunnarsdóttir, formaður stjórnar Vísindasjóðs, við afhendinguna í dag.
Sigríður Gunnarsdóttir, formaður stjórnar Vísindasjóðs, við afhendinguna í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins veitti í dag 11 styrki að upphæð 89 milljóna króna. Sjö styrkjanna voru veittir til nýrra rannsókna en fjórir styrkjanna eru framhaldsstyrkir til rannsókna sem hafa áður fengið styrk. Um er að ræða stærstu úthlutun Vísindasjóðsins til þessa.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Krabbameinsfélagi Íslands.

Á undanförnum fimm árum (frá árinu 2017 til ársins 2021) hefur Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins veitt 58 styrki, alls 316 milljónir króna, til 37 mismunandi rannsókna.

„Um er að ræða styrkveitingar sem teljast sem rífleg innspýting í íslenskt háskóla- og vísindasamfélag og styður við rannsóknarstarf í örum vexti ekki síst í heilbrigðisgeiranum. Þar erum við Íslendingar meðal fremstu þjóða á heimsvísu og eru þau verkefni sem hljóta styrki að þessu sinni líkleg til að hafa marktæk áhrif á þróun forvarna, greiningar og meðferðar krabbameina um allan heim,“ segir í fyrrnefndri tilkynningu.

Strykþegar við styrkveitinguna í dag.
Strykþegar við styrkveitinguna í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þar segir að Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, hafi lagt á það áherslu í ávarpi sínu að sjóðurinn myndi halda áfram að vaxa og dafna og þar með vera íslensku vísindafólki innan handar.

„Styrkirnir skipta verulegu máli, ekki síst við upphaf stórra rannsóknarverkefna sem eiga síðar möguleika á að stækka enn frekar. Vísindasjóðurinn var stofnaður árið 2015 en hryggjarstykki sjóðsins var stofnframlag Krabbameinsfélagsins auk erfðagjafa úr Minningarsjóði Ingibjargar Guðjónsdóttur Johnson annars vegar og Minningarsjóði Kristínar Björnsdóttur hins vegar. Síðan hefur sjóðurinn notið stuðnings sjálfsaflafés Krabbameinsfélagsins en þar eru Velunnarar Krabbameinsfélagsins ómissandi. Fá þeir sérstakar þakkir fyrir að styðja við rannsóknir sem koma til með að bjarga mannslífum,“ segir í tilkynningnni og jafnframt: 

„Tilgangur sjóðsins er að efla íslenskar rannsóknir á krabbameinum, meðal annars með því að styrkja með fjárframlögum rannsóknir á orsökum krabbameina, forvörnum, meðferð og lífsgæðum sjúklinga.“

Styrkþegarnir í ár eru:

  • Berglind Ósk Einarsdóttir hlýtur 6.150.000 kr. styrk fyrir verkefnið Hlutverk MITF í hindrun ónæmissvars sortuæxla.
  • Bylgja Hilmarsdóttir hlýtur 3.200.000 kr. styrk fyrir verkefnið Þróun örvefjalíkana úr briskrabbameini og notkun þeirra sem módel fyrir notkun PARP hindra í meðferð.
  • Erna Magnúsdóttir hlýtur 10.000.000 kr. styrk fyrir verkefnið BLIMP1 miðluð stjórnun á frumuhring í Waldenströmsæxlum.
  • Georgios Kararigas hlýtur 10.000.000 kr. styrk fyrir verkefnið Áhrif nýju curcúmín afleiðunnar C66 á hjartavöðvakvilla af völdum doxórúbicíns.
  • Guðrún Valdimarsdóttir hlýtur 8.600.000 kr. styrk fyrir verkefnið Æxlingar úr brjóstakrabbameinssjúklingum meðhöndlaðir með æðaþelssértækum sameindalyfjum - Samanburður á frumæxlum og meinvörpum í ólíkum undirgerðum brjóstakrabbameins.
  • Gunnhildur Ásta Traustadóttir hlýtur 4.000.000 kr. styrk fyrir verkefnið Hlutverk peroxidasin í eðlilegum og illkynja brjóstkirtli.
  • Laufey Tryggvadóttir hlýtur 9.232.081 kr. styrk fyrir verkefnið Brjóstakrabbamein á Íslandi árin 1988 – 2020: Samanburður á gæðum skimunar og meinafræðilegum forspárþáttum, milli kvenna á aldrinum 40 – 49 ára og 50 – 69 ára.
  • Margrét Helga Ögmundsdóttir hlýtur 8.500.000 kr. styrk fyrir verkefnið Sjálfsát í krabbameinum: Greining á spendýrasértæku hlutverki ATG7.
  • Pétur Orri Heiðarsson hlýtur 9.992.364 kr. styrk fyrir verkefnið Hlutverk óreiðusvæða í starfsemi MITF umritunarþáttarins.
  • Sigurður Yngvi Kristinsson hlýtur 9.221.532 kr. styrk fyrir verkefnið Klínískt notagildi frumuflæðisjárrannsókna í forstigum mergæxlis og áhrif nærumhverfis mergæxlisfrumna á sjúkdómsframvindu.
  • Stefán Sigurðsson hlýtur 10.000.000 kr. styrk fyrir verkefnið Hlutverk MITF í að viðhalda stöðugleika erfðaefnisins.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert