Nýr lífmarki hjálpar til við að greina slitgigt

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar Erfðagreiningar og Unnur Styrkársdóttir vísindamaður hjá …
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar Erfðagreiningar og Unnur Styrkársdóttir vísindamaður hjá Íslenskri erfðagreiningu og fyrsti höfundur rannsóknar um nýjan lífmarka sem nýtist við greiningu á slitgigt. Ljósmynd/Jón Gústafsson/ÍE

Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar (ÍE) hafa fundið nýjan lífmarka (e. biomarker) fyrir slitgigt sem getur hjálpað til við að greina sjúkdóminn og gefið til kynna hversu alvarlegur hann er.

Slitgigt hrjáir um 300 milljónir manna um allan heim og engin sérhæfð lyf eru í meðferð við slitgigt en það ræðst að mestu af því að það hefur vantað góðan lífmarka til að hjálpa til við sjúkdómsgreiningu og til að velja sjúklinga í klínískar rannsóknir og fylgjast með þróun sjúkdómsins. 

Hvetjandi niðurstöður

Í tilkynningu frá ÍE er vísað í grein sem birtist í Arthritis & Rheumatology þar sem vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar greina frá nýjum lífmarka (CRTAC1) fyrir slitgigt en tilvist hans segir ekki bara til um slitgigt í hnjám, höndum og mjöðmum, heldur getur hún líka sagt til um hvort það sé þörf á liðskiptaaðgerð. „Þetta eru mjög hvetjandi niðurstöður og gætu verið fyrstu skrefin í átt að því að þróa klínísk próf fyrir slitgigt,“ er haft eftir Unni Styrkársdóttur, vísindamanni hjá Íslenskri erfðagreiningu og fyrsta höfundar rannsóknarinnar, í tilkynningu ÍE.  

Fólk sem er með meira magn af CRTAC1 í blóðvökva er í meiri hættu að þróa með sér alvarlegan sjúkdóm. CRTAC1 er mun betri lífmarki en aðrir sem hafa fundist og tengjast slitgigt. 

„Nýr lífmarki eins og CRTAC, getur aukið verulega möguleikana á því að hægt verði að þróa nýtt lyf við slitgigt, en heimurinn bíður eftir slíku lyfi,“ er haft eftir Kára Stefánssyni forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert