Sir Richard Branson er nú lentur heill á húfi eftir ferð sína út í geim. Ferðin tók um klukkustund og náði geimferjan um 85 kílómetra út í geim en gufuhvolf jarðar nær um 100 kílómetra yfir sjávarmáli. Farþegar ferjunnar sáu því sveig jarðar og fengu að upplifa þyngdarleysi.
Branson var um borð í Unity 22, geimferju Virgin Galactic, fyrirtækis Bransons, ásamt tveimur flugmönnum og þremur samstarfsmönnum hans. Branson sagði ferðina hafa verið einstaka lífsreynslu.
Hann segir flugið vera prófraun í markaði geimferðamennsku en hann mun hefja sölu á ferðum út í geiminn á næsta ári. Nú þegar hafa um 600 einstaklingar greitt innborgun inn á miða en þeir munu kosta um 180 þúsund pund eða um 31 milljón íslenskra króna.