Telja örvunarskammt af Janssen gefa góða raun

Samkvæmt bráðabirgðagögnun úr rannsókn Johnson & Johnsons leiddi annar skammtur …
Samkvæmt bráðabirgðagögnun úr rannsókn Johnson & Johnsons leiddi annar skammtur af Janssen bóluefninu til nífaldrar fjölgunar á mótefnum gegn Covid-19. AFP

Bandaríski lyfjarisinn Johnson & Johnson, framleiðandi bóluefnisins Janssen gegn Covid-19, hefur gefið út að örvunarskammtur veiti skjóta aukningu á mótefni.

CNN greinir frá.

Samkvæmt bráðabirgðagögnum úr rannsókn Johnson & Johnson leiddi annar skammtur af Janssen-bóluefninu til nífaldrar fjölgunar á mótefnum gegn Covid-19, samanborið við það mótefni sem þátttakendur rannsóknarinnar höfðu 28 dögum eftir að hafa hlotið fyrri skammt bóluefnisins.

Veruleg aukning á mótefnasvörun

Þátttakendur rannsóknarinnar voru um 2.000 talsins og fengu þeir örvunarskammtinn sex mánuðum eftir fyrsta skammtinn af bóluefninu. Veruleg aukning á mótefnasvörun sást hjá einstaklingum á aldrinum 18 til 55 ára og hjá þeim 65 ára eða eldri sem fengu vægari skammt af örvunarskammtinum.

Í frétt CNN kemur fram Johnson & Johnson eigi nú í viðræðum við bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitið, evrópsku lyfjastofnunina, Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina og önnur heilbrigðisyfirvöld um nauðsyn þess að bjóða upp á örvunarskammt af Janssen-bóluefninu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert