Gömlu græjurnar öðlast aukalíf

Starfsfólk búnaðarþjónustu Origo. Frá vinstri: Muhammad Ahmad, Kristófer H.A Björnsson, …
Starfsfólk búnaðarþjónustu Origo. Frá vinstri: Muhammad Ahmad, Kristófer H.A Björnsson, Hafdís Ragnarsdóttir og Sigríður Ásdís Þórhallsdóttir. Ljósmynd/Origo

Origo hefur samið við fyrirtækið Foxway um förgun og endurnýjun á notuðum síma- og tölvubúnaði. Foxway sérhæfir sig í endurvinnslu á raftækjum með því að gera við þau og eða nýta í varahluti sem og farga því sem ekki er hægt að nýta á sem umhverfisvænastan hátt

Sesselja Þórunn Jónsdóttir, forstöðumaður búnaðarþjónustu hjá Origo segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu að þau séu mjög spennt fyrir samstarfinu við Foxway, en það sé leiðandi fyrirtæki í förgun og endurnýjun á gömlum raftækjum. 

Yfir 90% hlutanna fái nýtt líf

„Nú geta viðskiptavinir slegið upplýsingar um raftæki á borð við snjallsíma, spjaldtölvur, fartölvur, snjallúr og leikjatölvur inn í gagnagrunn á síðu Origo og fengið upplýsingar um hvort tækið sé hæft til endurnýtingar og hversu mikið fæst greitt fyrir tækið. Yfir 90% hluti þeirra raftækja sem Foxway kaupir öðlast nýtt líf. Viðskiptavinir koma tækjunum sínum til okkar, við sjáum um rest og þeir fá inneignarnótu að andvirði tækisins hjá Origo. Tryggt er að þeim tækjum sem ekki er hægt að endurnýta sé fargað á umhverfisvænan hátt,“ segir Sesselja.

„Það eiga allir gömul raftæki ofan í skúffu sem þeir hafa ekki hent einhverra hluta vegna. Það er einfalt að frelsa gamla tækið úr draslskúffunni og gefa nýjan tilgang. Ef ekki er hægt að endurnýta tækið sjáum við til þess að því sé fargað á umhverfisvænan hátt og segja má að með þessu séu allir græða,“ segir Sesselja og bætir við að starfsfólk búnaðarþjónustu Origo sé búið að vera í mikilli vinnu með grænar og umhverfisvænar áherslur undanfarna mánuði.
 
Starfsfólk Origo gerði tilraunaverkefni á dögunum þar sem allir fóru að leita heima hjá sér að gömlum raftækjum sem falin voru ofan í skúffum og inni í skápum. „Það kom í ljós að það er mikið til eins og gamlir símar, leikjatölvur ofl. Þessar gömlu græjur starfsmanna öðluðust því nýtt líf,“ segir Sesselja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert