Meiri hætta á blæðingum í meltingarvegi

Niðurstöðurnar eru sagðar hafa mikla þýðingu þar sem þær gætu …
Niðurstöðurnar eru sagðar hafa mikla þýðingu þar sem þær gætu nýst læknum við val á blóðþynningarmeðferð. Ljósmynd/Colourbox

Tíðni blæðinga í meltingarvegi er mun hærri hjá þeim sjúklingum sem fengið hafa blóðþynningarlyfið Xarelto (rivaroxaban) en hjá þeim sem fengið hafa tvö önnur blóðþynningarlyf hér á landi. Þetta sýna niðurstöður nýrrrar rannsóknar vísindamanna við Háskóla Íslands og Landspítala sem birtar eru í virtu alþjóðlegu vísindatímariti bandarískra lyflækna, Annals of Internal Medicine.

Rannsóknin náði til 5.868 sjúklinga

Rannsóknin náði til allra Íslendinga sem hófu meðferð með blóðþynningarlyfjunum Xarelto (rivaroxaban), Eliquis (apixaban) og Pradaxa (dabigatran) á fimm ára tímabili. Alls náði rannsóknin til 5.868 sjúklinga og var meira en helmingur þeirra á Xarelto.

Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að tíðni blæðinga í meltingarvegi hjá þeim sem fengu Xarelto var 40-42% hærri en hjá þeim sem gefið var Eliquis og 63-104% hærri en hjá þeim sem fengu Pradaxa. Jafnframt reyndust alvarlegar meltingarvegsblæðingar mun algengari hjá þeim sem fengu Xarelto en hin tvö lyfin, en tíðnin var 49-50% hærri hjá þeim sem fengu Xarelto samanborið við Eliquis og 39-95% samanborið við Pradaxa. Niðurstöður rannsóknarinnar eru sambærilegar við aðrar rannsóknir sem gerðar hafa verið í Bandaríkjunum, Bretlandi og Taívan.

Ein möguleg skýring á þessum mun er að Xarelto er gefið einu sinni á dag en hin lyfin eru gefin tvisvar á dag. Þetta veldur hærri hámarksstyrk lyfs í blóði og þar með fræðilega séð aukinni bælingu á storkukerfi líkamans.

Nýtist læknum við val á lyfjameðferð

Greinin er hluti af doktorsverkefni Arnars Braga Ingasonar í heilbrigðisvísindum við Háskóla Íslands en verkefnið snéri að því að bera saman öryggi og virkni blóðþynningarlyfja. Rannsóknin var unnin undir handleiðslu Einars Stefáns Björnssonar, prófessors í lyflækningum.

Ofangreindar niðurstöður hafi mikla þýðingu þar sem þær geta nýst læknum við val á blóðþynningarmeðferð, sérstaklega fyrir sjúklinga sem talið er að séu í aukinni hættu á meltingarvegsblæðingum, að sögn Arnars.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert