Þróa tölvuskjá sem hægt er að bragða

Skjárinn ber heitið Taste-the-TV og er notast við tíu dósir …
Skjárinn ber heitið Taste-the-TV og er notast við tíu dósir af bragðefnum sem spreyja úða á skjáinn. Skjáskot

Frumgerð að sleikjanlegum sjónvarpsskjá, sem getur líkt eftir matarbragði, hefur verið þróuð af japönskum prófessor.

Reuters greinir frá.

Skjárinn ber heitið Taste-the-TV og er notast við tíu dósir af bragðefnum sem spreyja úða á skjáinn svo notandi getur sleikt og fundið bragðið af þeirri matvöru sem á skjánum er.

„Markmiðið er að gera fólki kleift að upplifa eins og það sé að borða á veitingastað, jafnvel þótt það sé hinum megin á hnettinum eða heima hjá sér,“ sagði prófessor Homei Miyashita, sem þróað hefur skjáinn.

Í viðræðum við framleiðendur

Hann sagði við fréttastofu Reuters að hægt væri að nota skjáinn til þess að þjálfa kokka í fjarnámi og að ef farið verður að framleiða slíka skjái myndi hver og einn kosta um 875 bandaríkjadali, eða um 100 þúsund íslenskar krónur.

Miyashita er í viðræðum við framleiðendur um aðrar mögulegar útfærslur á bragðefnatækni sinni og hefur ein hugmyndin verið að bæta bragði við ristað brauð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert