Beint: Hvað er hugsun?

Hvað er hugsun?
Hvað er hugsun? Ljósmynd/Colourbox

Hvað er hugsun? er fræðslufundur sem Íslensk erfðagreining stendur að í dag. Þar munu fjórir valinkunnir fyrirlesarar velta fyrir sér hvernig hugsun fæðist og hvaða þýðingu fyrirbærið hugsun hefur fyrir alla okkar tilveru.

Fundurinn verður í beinu streymi hér á mbl.is og hefst kl. 13. 

Kári Stefánsson fjallar um það hvernig hugsanir ráða flestu í okkar lífi (jafnvel samsetningu líkama okkar) þótt við höfum næstum enga hugmynd um það hvað hugsun sé eða hvernig hún verður til

Jörgen L. Pind ætlar að grípa niður í heimspeki nýaldar frá Descartes til Johns Stuart Mill, þar sem liggja rætur hinnar „sálarlausu sálfræði“ sem varð til á síðari hluta 19. aldar og velta upp hugmyndum um hugsun eins og þær birtast þar. Því næst ætlar hann að segja frá  rannsóknum á hugsun, einkum þeirra Tverskys og Kahnemanns, en Kahnemann hlaut Nóbelsverðlaun fyrir þær árið 2002. Loks fjallar Jörgen um vitundina og leggur út frá tveimur tilvitnunum í skrif Kierkegaards og horfir frá þeim til nútímalegra hugtaugavísinda.

Nanna Briem nálgast hugsun frá sjónarhóli geðlæknisins og veltir upp þeim breytingum sem geðrænir sjúkdómar valda á hugsun og hvernig þær stjórna líðan okkar. 

Jón Kalman Stefánsson slær botninn í umræðurnar með því að ræða hugsun eða öllu heldur hugsunarleysi ljóðsins, heila á hestbaki, halastjörnur, stangveiði, ljósakrónur, spámanninn Esekíel og James Webb-sjónaukann, og gerir atlögu að því að útskýra hvers vegna það eru sextán mánuðir í árinu.

Fundurinn fer fram í húsi Íslenskrar erfðagreiningar og stendur frá klukkan 13 til 14:30. 

mbl.is