Instagram kynnir nýjar aðgerðir gegn kynlífskúgun

Instagram er á meðal vinsælustu samfélagsmiðla barna og ungmenna á …
Instagram er á meðal vinsælustu samfélagsmiðla barna og ungmenna á Íslandi. AFP

Meta, móðurfyrirtæki Facebook og Instagram, hefur tilkynnt um nýjar aðgerðir á Instagram sem miða að því að vernda ungmenni gegn kynlífskúgun (e. sextortion) og hótunum um dreifingu kynferðislegra mynda.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Segir að þessar aðgerðir séu sérstaklega mikilvægar í ljósi þess að Instagram er á meðal vinsælustu samfélagsmiðla barna og ungmenna á Íslandi þar sem um 82% barna í 4.-7. bekk og 98% barna í 8.-10. bekk noti samfélagsmiðilinn. 

Helstu aðgerðirnar á Instagram til að bregðast við kynlífskúgun eru að:

  • Nektarmyndir verða sjálfkrafa gerðar óskýrar í einkaskilaboðum til að verja viðtakendur.
  • Unglingar undir 16 ára aldri geta ekki breytt stillingu reikningsins úr einkaham í opinn án samþykkis forráðamanna.
  • Aukin fræðsla og forvarnir verða í samstarfi við áhrifavalda á Instagram.
  • Ráðgjöf verður aðgengileg fyrir notendur sem verða fyrir kynlífskúgun og foreldra unglinga.
  • Breytingar á tengi og deilimöguleikum á notendareikningum til þess að trufla notkunarmynstur skipulagðra glæpasamtaka á borð við yahoo boys.

Aðgerðirnar koma í kjölfar breytinga á notkunarskilmálum fyrir unglingsnotendur sem Meta kynnti í september.

Meðal þeirra breytinga eru að reikningar notenda undir 18 ára aldri eru sjálfkrafa stilltir á einkaham, engar tilkynningar eru sendar á milli klukkan 22 og 7 á nóttunni til að trufla ekki svefn barna, og foreldrar geta séð hvaða reikninga börnin hafa haft samskipti við nýlega.

Í tilkynningunni er farið yfir nokkrar ábendingar fyrirforeldra til að tryggja öryggi barna sinna á samfélagsmiðlum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert