Einkafærslur nýttar í að þjálfa gervigreind

Færslur Íslendinga eru ekki undanskildar.
Færslur Íslendinga eru ekki undanskildar. AFP/Sebastien Bozon

Frá og með 27. maí mun bandaríska tæknifyrirtækið Meta, móðurfyrirtæki Instagram, Facebook og Threads, nota færslur evrópskra notenda sinna til að þjálfa gervigreindarlíkön.

Eru það færslur sem einstaklingar, þar á meðal Íslendingar, birta á miðlum Facebook, Instagram og Threads. 

Fyrirtækið hyggst nýta myndir, færslur og athugasemdir sem birtar eru á miðlum þess.  Einkaskilaboð verða undanþegin auk reikninga notenda sem eru undir 18 ára aldri.  

Notendur miðlana geta valið að þeirra efni verði undanskilið í þjálfun gervigreindarlíkansins en allir notendur Meta-miðla munu fá tilkynningu fyrir 27. maí þar sem þeir annaðhvort samþykkja eða hafna þátttöku. 

Meta áætlar að fjárfesta 60 til 65 milljörðum dollara á þessu ári. Stór hluti fjármagnsins fer í gagnamiðstöðvar, netþjóna og aðra innviði sem eru nauðsynlegir til að þróa gervigreindarlíkön. 

Vonast fyrirtækið til þess að byggja öflugt gervigreindarlíkan sem muni skáka gervigreindarspjallmenninu ChatGPT. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert