Kom til jarðar á sjötugsafmælinu

Don Pettit færður í sjúkratjald eftir lendingu.
Don Pettit færður í sjúkratjald eftir lendingu. AFP/NASA/Bill Ingalls

Elsti starfandi geimfari Bandaríkjanna, Don Pettit, er kominn aftur til jarðar úr geimnum. Hann kom til bara á sjötíu ára afmælisdaginn sinn.

Pettit kom til jarðar með Soyuz MS-26-geimhylkinu, ásamt rússneskum förunautum sínum Alexey Ovchinin og Ívan Vagner. Geimhylkið sveif með fallhlíf til jarðar og lenti í Kasakstan snemma á páskadagsmorgun.

Þeir eru nýkomnir 220 daga úthaldi í Alþjóðlegu geimstöðinni. Pettit hefur nú varið alls 590 dögum í geimnum, en þetta var hans fjórða verkefni.

Ekki sá elsti

Hann er þó ekki elsti maðurinn til að fara út í geiminn, það met á John Glenn, sem var 77 ára þegar hann fór í verkefni á vegum Nasa árið 1998. Hann lést árið 2016.

Pettit og Rússarnir munu nú eyða nokkrum dögum í að jafna sig á geimferðinni og venjast þyngdarlögmáli jarðar aftur.

Eftir það flýgur Pettit heim til Houston í Texas, en félagar hans fara aftur til Moskvu í Rússlandi.

Geimhylkið svífur til jarðar með fallhlíf.
Geimhylkið svífur til jarðar með fallhlíf. AFP/NASA/Bill Ingalls
Alexey Ovchinin eftir lendingu.
Alexey Ovchinin eftir lendingu. AFP/NASA/Bill Ingalls
Ivan Vagner.
Ivan Vagner. AFP/NASA/Bill Ingalls
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert