Microsoft hættir með uppfærslur fyrir Windows 10

Microsoft mun hætta veita uppfærslur á Windows 10 stýrikerfinu í …
Microsoft mun hætta veita uppfærslur á Windows 10 stýrikerfinu í október nk. EPA

Bandaríski tæknirisinn Microsoft mun hætta að veita nýjar- og öryggisuppfærslur fyrir Windows 10 stýrikerfið frá og með 14. október næstkomandi.

Þó að tölvur með Microsoft 10 haldi áfram að virka, verða þær viðkvæmari fyrir öryggisógnum án reglulegra uppfærslna og forrit gætu hætt að virka með tímanum að sögn Traust Eiríkssonar, sölustjóra hjá tæknifyrirtækinu OK. 

„Þetta getur haft áhrif á bæði notendaupplifun og öryggi. Það er því mikilvægt að íhuga að uppfæra í Windows 11 ef tölvan styður það. Ef hún styður það ekki, þá er öruggara að uppfæra í nýrra eintak. Windows 11 býður upp á betra öryggi, meiri hraða og lengri rafhlöðuendingu, sem nýtist hvort sem tölvan er notuð við vinnu, leik eða nám,“ segir Trausti. 

Trausti Eiríksson sölustjóri hjá OK segir þegar Microsoft hættir að …
Trausti Eiríksson sölustjóri hjá OK segir þegar Microsoft hættir að uppfæra Windows 10, stýrikerfið gæti það haft áhrif á notendaupplifun og öryggi. Ljósmynd/Aðsend

Hann segir Windows 11 stýrikerfið búi yfir nýjum öryggiseiginleikum, eins og TPM 2.0, sem tryggir að lyklar og dulkóðuð gögn séu örugglega geymd. „TPM 2.0 er mikilvægur öryggisþáttur í Windows 11 sem verndar viðkvæm gögn á öruggan hátt. Það er lykilatriði þegar kemur að því að vernda upplýsingar gegn árásum,“ útskýrir Trausti.

Ný gervigreind í Windows 11

„Notendaupplifunin í Windows 11 byggir á því sem við þekkjum frá Windows 10, en með uppfærðum eiginleikum sem bæta árangur og auðvelda fjölverkavinnslu. Með Snap Layouts er hægt að skipleggja gluggana á skjánum og fínstilla vinnusvæðið á þægilegan hátt. Snap Layouts hefur gert það auðveldara fyrir mig að halda vönduðu skipulagi á mörgum gluggum á sama tíma,“ segir Trausti.

Hann segir Copilot, nýja gervigreindin í Windows 11, hjálpi notendum að útskýra flókin hugtök og finna einföld svör við spurningum. Með Copilot er hægt að læra nýja hluti eða fá aðstoð við að bæta við upplýsingum í gegnum verkefnastikuna eða með sérstökum Copilot-takka sem er í boði í nýjum Windows 11 fartölvum

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert