Microsoft hættir að styðja Windows 10 stýrikerfið

Arnar S. Gunnarsson, öryggisstjóri OK.
Arnar S. Gunnarsson, öryggisstjóri OK. Ljósmynd/Aðsend

Microsoft mun í dag formlega hætta að styðja Windows 10 stýrikerfið. Mælingar sýna fram á að allt að 150 milljónir fyrirtækjatölva séu að keyra á Windows 10 og muni verða sérstakt skotmark hakkara þar sem þær verða með tíma viðkvæmari fyrir netárásum.

Þetta segir í tilkynningu frá OK.

Segir þar enn fremur að mælingar í september hafi sýnt fram á að allt að 40% Windows-tölva á heimsvísu séu enn að keyra á Windows 10. Mælingar á Íslandi bendi til að allt að 37% tölva séu með Windows 10 en það hafi verið um 47% í júní og gangi því vel að fækka þeim.

Áhætta muni aukast eftir því sem líði á

„Það sem þetta þýðir er að Microsoft er hætt að veita Windows 10 stuðning og gefur ekki lengur út uppfærslur. Windows 10 er orðið 10 ára gamalt stýrikerfi og bara í apríl á þessu ári uppgötvuðust 17 öryggisveikleikar í stýrikerfinu en það eru einmitt þeir sem verður hætt að lagfæra. Slíkir veikleikar geta leyft hökkurum að komast yfir gögn, lykilorð eða jafnvel stjórn á tölvum. Tölvurnar sjálfar halda áfram að virka en frá og með morgundeginum munu ekki berast fleiri uppfærslur frá Microsoft,“ er haft eftir Arnari S. Gunnarssyni, öryggisstjóra OK.

Þá verði áhættan lítil fyrstu dagana en muni aukast eftir því sem líði á.

„Samkvæmt mælingum er áætlað að 150 milljón tæki séu eingöngu hjá fyrirtækjum. Þeir sem stunda innbrot í tölvukerfi leita alltaf veikustu hlekkjanna og þessi fjöldi af úreltum kerfum verður aðlaðandi skotmark fyrir árásir.“

Ráðlagt að uppfæra beint í Windows 11

Þá muni með tímanum annar hugbúnaður einnig hætta að styðja Windows 10, sem geti gerst hraðar en margir geri sér grein fyrir, og verður algengt að forrit hætti að virka eftir uppfærslur. Fyrirtæki sem treysta á tækniaðstoð frá Microsoft gætu því einnig lent í vandræðum þar sem þeir samningar falla út þegar stuðningi lýkur.

Haft er eftir Arnari að hægt sé að uppfæra beint í Windows 11 í flestum nýjum tölvum. Það sé ráðlagðasta leiðin og tryggi áframhaldandi öryggi og samhæfni. Í þeim tækjum sem ekki styðja þá uppfærslu sé nauðsynlegt að fara í útskipti á vélbúnaði.

Þá mun Microsoft hafa ákveðið að gefa fyrsta árið frítt af svokölluðum ESU-samningi (Extended Security Updates) sem muni tryggja áframhaldandi öryggisfærslur, en fylgja því þó allnokkrar kvaðir og takmarkanir.

„Þessar kvaðir eru t.d. að þú verður að nota svokallaðan skýjanotanda frá Microsoft á tölvunni þannig að það mun ekki henta mörgum fyrirtækjum, OK ráðleggur sínum viðskiptavinum að uppfæra í Windows 11 þar sem það er mögulegt og að endurnýja tölvur þar sem það á ekki við. ESU-samningar ættu aðeins að vera notaðir sem bráðabirgðalausn, ekki til langs tíma,“ er haft eftir Arnari.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert