Próf fyrir enska setra á Íslandi

Sigurvegarar í neðri röð eigandi/hundur: Jón Bjarmi/Rjúpnabrekku Fríða, Daníel/Rjúpnabrekku Miro, …
Sigurvegarar í neðri röð eigandi/hundur: Jón Bjarmi/Rjúpnabrekku Fríða, Daníel/Rjúpnabrekku Miro, Kristinn/Rjúpnabrekku Toro, Haukur/Vatnsenda Karma, Einar/ ISJCH NLM RW-17 Rjúpnabrekku Black Í efri röð eru þeir: Ólafur/prófstjóri, Arnfinn Holm/dómari Einar Guð

Um síðustu helgi hélt deild fyrir enskan setter á Íslandi svokallað Barking Heads próf. Norski dómarinn Arnfinn Holm kom til landsins til að dæma prófið en hann er búinn að vera í fuglahundasportinu í 38 ár og vera dómari síðan 2007. Enskur setter er oft nefndur konungur fuglaveiðihunda.

Eftir margra daga undirbúning var komið að prófi. Var farið með dómaranum á föstudeginum að skoða prófsvæði og sáu menn þó nokkuð af rjúpu frá bíl og voru menn vissir að það væri því meira af henni á svæðinu líkt og var búið að vera alla vikuna. Voru menn því nokkuð vongóðir fyrir laugardeginum.

Á föstudags kvöldinu byrjaði að snjóa, ekki mikið 1-2 centimetra en það var nóg til þess að grámi var kominn yfir allt svæðið á laugardeginum. Það varð fljótlega ljóst eftir að prófið byrjaði að lunginn af fuglinum hafði fært sig en í lok dags höfðu allir hundar átt séns á fugli. Fjórir hundar nýttu sér sénsinn og lönduðu einkunnum. 

Í opnum flokki var það:
Ice Artemis Mjolnir - 1. einkunn og besti hundur flokks (Strýhærður Vorsteh).
Veiðimela Krafla - 2. einkunn (Snögghærður Vorsteh).
Í unghunda flokki var það:
Rjúpnabrekku Toro - 1. einkunn og besti hundur flokks (Enskur Setter).
Vatnsenda Karma - 1. einkunn (Pointer).

Það var því farið á laugardags kvöldinu að leita af fuglinum. Hann fannst í meiri hæð og voru nú puttarnir krossaðir um að hann yrði þarna áfram næsta morgun. Er bílunum var lagt við prófsvæðið á sunnudags morgninum þá var að klárast lítill rigningarskúr og hafði vindurinn snúið sér í suðaustan en deginum áður var hann norðvestan.

Fyrsta slepp byrjaði rólega, fyrstu tíu mínúturnar var enginn fugl sjáanlegur. Á seinni tíu mínútunum vorum menn komnir aðeins hærra og náðust 2 standar á hundana og þá var rjúpan loks fundin.

Það varð allt alveg vitlaust og í hverju sleppi voru 2-4-5 standar ásamt fleiri sénsum sem hundarnir nýttu mis vel. Mjög mikið af rjúpu var á svæðinu og í lok dags höfðu hundarnir tekið um 25 standa og yfir 40 sénsar í það heila. Rjúpan var mjög spök og til í leikinn. Það er útlit fyrir að það verði mjög sterkur varpstofn núna í vor.

Fimm hundar komu til baka í hús með einkunn í unghunda flokki.
ISJCH NLM RW-17 Rjúpnabrekku Black - 1. einkunn og besti hundur flokks (Enskur Setter).
Rjúpnabrekku Fríða - 1. einkunn (Enskur Setter).
Rjúpnabrekku Miro - 1. einkunn (Enskur Setter).
Rjúpnabrekku Toro - 1. einkunn (Enskur Setter).
Vatnsenda Karma - 2. einkunn (Pointer).

Þeir fjórir Ensku Setarnir sem fengu allir 1. einkunn koma úr sama gotinu sem er frá Rjúpnabrekku ræktun.

Fram kemur að þetta hafi verið sannarlega frábær dagur sem rennur mönnum seint úr minni. Deildin er hluti af Hundaræktunarfélagi Íslands en heldur úti sérstakri heimasíðu fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér þetta sport betur.

Hluti þátttakanda frá síðustu helgi.
Hluti þátttakanda frá síðustu helgi. Einar Guð.
mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert