Hafralónsá í Þistilfirði opnaði í gær og komu nokkrir fiskar á land sem lofar góðu um framhaldið.
Að sögn Stefáns Hrafnssonar sem var við veiðar þar í gær komu fjórir laxar á land á fyrstu vaktinni á tvær stangir. Þar af voru tveir smálaxar sem virðast vera óvanalega snemma á ferðinni þetta sumarið og gæti lofað góðu varðandi framhaldið.
Að auki sluppu tveir til viðbótar, þar af einn verulega stór, í veiðistað númer 15 sem er talsvert ofarlega í ánni.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |