Fluga vikunnar í laxinn er ný útgáfa af klassískri flugu og fyrir sjóbleikjuna er það gjöful púpa. Það er Ólafur Vigfússon í Veiðihorninu sem velur flugurnar og segir deili á þeim.
Black and Blue er velþekkt miðsumarfluga. Black and Blue hefur hér verið hnýtt með kúluhaus sem þyngir fluguna svo unnt er að veiða dýpra með henni án þess að bregða fyrir sig sökkenda.
Kúlan gerir það að verkum að flugan hreyfist öðruvísi í vatni en óþyngd. Ýmsar vel þekktar laxaflugur hafa nú verið útfærðar með kúluhaus og gefið vel í miklu vatni nú í byrjun sumars.
Alma Rún er ein af betri púpum í sjóbleikju. Flugan var upphaflega hönnuð fyrir Hlíðarvatn og notuð þar árum saman áður en hún varð þekkt.
Alma Rún hefur reynst feikivel víða um land, meðal annars í Hraunsfirði og silungasvæðum Húnvetnsku ánna.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |