Telja sig hafa veitt eldislax í Botnsá

Laxinn úr Botnsá síðastliðinn fimmtudag.
Laxinn úr Botnsá síðastliðinn fimmtudag. Guðmundur Atli Ásgeirsson

Guðmundur Atli Ásgeirsson sem tengist Botnsá í Hvalfirði tók myndir af laxi sem veiddist síðastliðinn fimmtudag í ánni og telja menn sig nokkuð vissa um að þar hafi eldislax verið á ferðinni.

Að sögn Guðmundar var það Reynir Friðriksson sem veiddi laxinn, en hann er þaulvanur veiðimaður og hefur meðal annars starfað sem leiðsögumaður við Ytri-Rangá. Reynir mun hafa sent fiskinn strax til frekari rannsóknar hjá Fiskistofu og bíða menn niðurstöðu þaðan.  Guðmundur sagði að nokkuð víst væri að um eldislax væri að ræða enda hefði hann öll ytri einkenni þess. 

Ekki er vitað um laxeldi í næsta nágrenni við Botnsá og reynist þetta rétt er nokkuð ljóst að laxar sem sleppa úr sjókvíum geta ferðast langar vegalengdir þar til þeir velja sér á til að synda upp í. 

Þegar sjókvíaeldi var sem mest í gangi á árunum í kringum 1990 við Faxaflóa reyndust allt að 60% laxanna sem veiddust í Botnsá upprunnir úr fiskeldiskvíum samkvæmt rannsóknum þáverandi Veiðimálastofnunar.

Guðmundur Atli Ásgeirsson
Guðmundur Atli Ásgeirsson
mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert