Risableikja á land úr Eyjafjarðará

Ágúst Máni með bleikjuna stóru.
Ágúst Máni með bleikjuna stóru. rosberg.is

Veiðin á efsta svæðinu í Eyjafjarðará hefur verið afbragðsgóð frá því opnað var nú um mánaðamótin. Í gær kom þar risableikja á land.

Feðgarnir Ágúst Ásgrímsson og Ágúst Máni Ágústsson voru á veiðum á svæði fimm og alls lönduðu þeir rúmlega 20 fiskum. Sú stærsta var engin smásmíði eða 77 cm löng hrygna sem Ágúst Máni setti í. Var þetta mikill slagur og hafðist hrygnan ekki í land fyrr en eftir 20 mínútna baráttu. Er þetta stærsta bleikjan sem komið hefur á land úr ánni í sumar.

Heilt yfir var þetta vænn fiskur hjá þeim feðgum og landaði til að mynda Ágúst Máni annarri stórbleikju sem var 67 cm.

Aðeins er veitt í mánuð á tveimur efstu svæðum ár­inn­ar frá 1. ág­úst til loka mánaðarins. Skylt er að sleppa öll­um bleikj­um á efstu tveim­ur svæðunum og er þetta gert í því skyni að ná veiðinni upp úr margra ára öldudal og hafa menn á síðustu árum orðið varir við talsvert mikil batamerki. 

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert