Í Skessuhorninu er greint frá að nú hilli loks undir brú yfir Norðlingafljót sem kemur til með að bæta aðgengi fólks inn á Arnarvatnsheiði.
Fram kemur að samið hefur verið við Vestfirska verktaka ehf. um að byggja brúna og stendur til að því verki verði lokið fyrir 1. október næstkomandi. Reist verður stálgrindarbrú með timburgólfi milli tveggja hraunklappa við ána, skammt ofan við svokallað Helluvað.
Verktakar úr Borgarfirði sjá um vegagerðina sem hófst á mánudaginn. Fram kemur að brúarstæðið sé frá náttúrunnar hendi mjög gott og hefur draumur margra um árabil verið að á þessum stað yrði reist brú.
Langt er síðan úthlutað var peningum til verksins en þeir voru meðal annars „lánaðir“ í önnur verk. Jón Gunnarsson, fyrrverandi samgönguráðherra, beitti sér fyrir því að lokið yrði að fjármagna framkvæmdina og hafinn undirbúningur að útboði.
Norðlingafljót hefur fram til þessa verið helsti farartálmi almennrar umferðar úr Borgarfirði og norður í Miðfjörð um Arnarvatnsheiði. Jepplingafært er nú þessa leið utan Norðlingafljóts, en það er of vatnsmikið til að hægt sé að aka þar yfir nema á vel búnum jeppum. Þá er rennsli í ánni afar mismunandi og getur aukist verulega eftir heita sumardaga þegar snjóbráð er mikil úr jöklunum. Af þeim sökum hefur oft legið við slysi þegar óvant ferðafólk hefur fest bíla sína í fljótinu.
Rætt var Snorra Jóhannesson, bónda á Augastöðum og veiðivörð á Arnarvatnsheiði, sem fagnaði því að loks hilli undir brúargerðina sem hann sagði að væri löngu tímabær og muni skapa fjölmörg tækifæri í ferðaþjónustu og tengir saman sýslurnar. Þá eykur hún öryggi ferðafólks og þar hafi oft legið við stórslysum í fljótinu. Fyrir Veiðifélag Arnarvatnsheiðar þýðir þetta aukna umferð og um leið bætta þjónustu við fólk sem vill njóta náttúrunnar og fengsælla veiðivatna á Arnarvatnsheiði.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |