Laxveiði víðast hvar lokið

Frá Sandgiljahyl ofarlega í Vesturá í Miðfirði fyrr í sumar.
Frá Sandgiljahyl ofarlega í Vesturá í Miðfirði fyrr í sumar. ÞGÞ

Veiði er nú lokið í flestum laxveiðiám landsins og liggja lokatölur fyrir í mörgum þeirra. Enn er þó veitt í nokkrum þeirra og eru það einkum hafbeitarárnar á Suðurlandi þar sem veitt verður til langt fram í október.

Í gærkvöldi birtust lokatölur úr mörgum veiðiám víða um land á vef Landssambands veiðifélaga og nær samantektin frá 20. til 26. september.  

Sem fyrr er Eystri-Rangá efst á listanum yfir fjölda veiddra fiska með 3.800 laxa og er Ytri-Rangá í öðru sæti þar skammt á eftir með 3.742 laxa og gæti mögulega stolið efsta sætinu rétt í lokinn. Í þriðja sæti er Miðfjarðará þar sem veiði lauk á mánudaginn með lokatölu upp á 2.719 og er þar með aflahæst af sjálfbæru laxveiðiánum.

 Hér er listinn yfir 10 aflahæstu árnar þessa vikuna og lokatölur

  1. Eystri-Rangá 3.733 lax­ar - viku­veiði 67 laxar­ (2041 á sama tíma 2017).
  2. Ytri-Rangá 3.742 lax­ar - viku­veiði 149 lax­ar (6835 á sama tíma 2017).
  3. Miðfjarðará 2.719 lax­ar - viku­veiði 117 lax­ar – LOKATALA (3765 árið 2017).
  4. Þverá og Kjar­rá 2.455 lax­ar – veiði lokið, lokatölur liggja ekki fyrir (2060 árið 2017).
  5. Norðurá 1.692 lax­ar - LOKATALA (heildarveiði 1.719 árið 2017).
  6. Langá 1.635 lax­ar - viku­veiði 123 lax­ar -LOKATALA (heildarveiði 1.701 árið 2017).
  7. Haffjarðará 1.545 lax­ar LOKATALA (heildarveiði 1.167 árið 2017).
  8. Selá í Vopnafirði 1.340 lax­ar – LOKATALA (937 árið 2017).
  9. Urriðafoss í Þjórsá 1.317 lax­ar - viku­veiði 14 lax­ar (755 árið 2017).
  10. Laxá í Dölum 1.075 laxar – veiði lokið, en loktölur ekki borist (871 árið 2017).

Þá liggja fyrir lokatölur úr nokkrum öðrum ám og samkvæmt þeim er heildarveiðin nokkuð áþekkt því sem hún var sumarið 2017 nema þá helst í Laxá á Ásum og Blöndu þar sem veiði var nú mun minni en sumarið 2017.

Nokkrar staðfestar lokatölur úr öðrum ám:

  • Elliðaárnar gáfu 960 laxa í heildarveiði á þessari vertíð (890 sumarið 2017).
  • Laxá á Ásum gaf 703 laxa í heildarveiði (1.108 sumarið 2017).
  • Laxá í Aðaldal gaf 608 (709 sumarið 2017).
  • Straumfjarðará á Snæfellsnesi með 349 laxa (352 sumarið 2017).
  • Laugardalsá við Ísafjarðardjúp með 198 laxa (175 árið 2017).
  • Búðardalsá á Skarðsströnd með 331 lax (255 árið 2017).
  • Blanda með 870 laxa (1.433 árið 2017).
  • Hofsá og Sunnudalsá í Vopnafirði með 697 laxa (595 árið 2017).
  • Laxá í Leirársveit með 671 lax (624 árið 2017).
  • Flókadalsá í Borgarfirði með 477 laxa (424 árið 2017).
  • Langholt í Hvítá í Árnessýslu með 411 laxa.
  • Korpa (Úlfarsá) með 237 laxa (115 árið 2017).
  • Fnjóská var með 126 laxa (107 árið 2017).
  • Krossá á Skarðströnd með 91 lax (116 árið 2017).
mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert